Messi klikkaði á víti en Barca vann samt fyrsta titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2013 23:00 Mynd/AFP
Barcelona landaði fyrsta titli tímabilsins í kvöld þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Atlético Madrid á heimavelli í seinni leik liðanna um spænska ofurbikarinn. Barcelona vann Ofurbikarinn á fleiri mörkum skoruðum á útivelli en Atlético Madrid endaði leikinn níu á móti ellefu því tveir leikmenn liðsins fengu að líta rauða spjaldið á lokamínútunum. Lionel Messi gat tryggt Barcelona sigur í leiknum þegar hann tók víti á 89. mínútu leiksins en skaut þá í slá. Barcelona vann ofurbikarinn á endanum á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Brasilíumaðurinn Filipe Luís fékk rauða spjaldið á 81. mínútu fyrir brot á Daniel Alves og Tyrkinn Arda Turan fór sömu leið í uppbótartíma. Brasilíumaðurinn Neymar tryggði Barcelona 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli Atlético eftir að David Villa, fyrrum leikmaður Barcelona, hafði komið sínum mönnum yfir í fyrri hálfleiknum. Þetta mark Neymar tryggði því Barcelona fyrsta titilinn eftir að hann kom til félagsins en Barcelona var að vinna spænska ofurbikarinn í fimmtánda sinn þar af í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Lionel Messi og Neymar voru báðir í byrjunarliði Barcelona og spiluðu allan leikinn. Þetta er fyrsti leikurinn þar sem þeir spila 90 mínútur saman. Messi átti ekki góðan dag og ýtir þetta undir kenningar manna að þeir geti ekki báðir blómstrað á sama tíma.
Spænski boltinn Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti John Cena hættur að glíma Sport Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu Sjá meira