Evrópubikarkeppni landsliða í 3. deild í frjálsum íþróttum fer ekki fram hér á landi á næsta ári þrátt fyrir ósk Frjálsíþróttasambands Evrópu (EAA). Stjórn Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) segir fjárhagslega áhættu of mikla.
FRÍ stóð að framkvæmd Evrópubikarkeppninnar hér á landi árið 2011. Í tilkynningu frá FRÍ kemur fram að framkvæmdin hafi tekist vel í alla staði. Engir opinberir styrkir hafi þó fengist til framkvæmdarinnar.
„Þrátt fyrir að EAA greiði bæði allan kostnað vegna gistingar og uppihald hinna erlendu gesta og veiti styrk til framkvæmdar og undirbúnings, er ljóst að FRÍ getur ekki tekið áhættu á þessari framkvæmd, án utanaðkomandi stuðnings," segir í tilkynningunni sem send var fjölmiðlum í dag. Án opinbers stuðnings sé kostnaður þó of mikill til að framkvæmdin sé áhættunnar virði.
Stjórn FrÍ bendir á að í öðrum Evrópulöndum fáist opinber styrkur sem nemi um 20-30 milljónum króna til sambærilegra verkefna. Rökin fyrir því að ríki og sveitarfélög styðji við bakið á verkefnum sem þessum séu þau að þau skili meiri tekjum til samfélagsins en nemur kostnaðinum. Auk þess hljóti gestgjafinn jákvæða kynningu og aðrar tekjur.
„Alls taka um 12-14 þjóðir þátt í þeim hluta sem hér um ræðir. Það eru gera samtals um 500-550 keppendur auk fararstjóra, þjálfara og annarra aðstoðarmanna, samtals um 580-600 manns, sem dvelja hér í a.m.k. fjóra daga. Það gerir um 2500 gistinætur. Tekjur vegna gistingar gætu því numið um 45-50 m.kr. Til viðbótar þurfa langflestir að fljúga með íslensku flugfélagi til landsins sem gerir aðrar 35-40 m.kr. að lágmarki. Heildarviðbótartekjur vegna móta af þessu tagi eru því um 80-90 m.kr. fyrir eitt tveggja daga mót. FRÍ fékk enga opinbera styrki til að framkvæma Evrópubikarinn árið 2011," segir í tilkynningunni.
Of mikil fjárhagsleg áhætta
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið

„Held áfram nema ég verði rekinn“
Körfubolti


Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið
Enski boltinn

Borche: Dómararnir sjá það sem þeir sjá
Körfubolti

Kári: Bara negla þessu niður
Körfubolti





Fleiri fréttir
