„Ég var mjög reiður því ég taldi ekkert hafa gerst. Að mínu mati þá titraði boltinn aðeins og ekkert meira en það. Dómararnir endursýndu atvikið aftur og aftur en ég var á sömu skoðun,“ sagði Woods við fjölmiðla eftir þriðja hring í gær. Woods lék á 66 höggum eða fimm höggum undir pari og er fjórum höggum á eftir Jim Furyk fyrir lokahringinn.
Woods var ekki sá eini sem hefur fengið dæmt á sig klaufalegt víti í mótinu. Eins og sjá má hér að neðan þá fékk Justin Rose dæmt á sig eitt högg í víti fyrir að slá grastorfu í boltann sinn úr æfingasveiflu sem varð til þess að boltinn færðist.