Innköllun á 150.000 Hyundai Genesis bílum hefur orðið til þess að fyrirtækið hefur rekið þróunarstjóra sinn og tvo undimenn hans. Innköllun bílanna var vegna leka í bremsuvökva sem skemmdi út frá sér. Það var meira en ráðendur í Hyundai þoldu og þróunarstjórinn Kwon Moon-sik fékk að fjúka.
Hyundai segir að þessi brottvikning sé til marks um skuldbindingu fyrirtækisins til gæðastjórnunar og að slík mistök verði ekki liðin. Kwon Moon-sik var ekki langlífur hjá Hyundai en hann entist í eitt ár í þessu starfi. Það er greinilega heitt undir þessari stöðu.
Hyundai rekur þróunarstjórann vegna innkallana
