Uppboðið var til styrktar RED, góðgerðarsamtökum Bono úr hljómsveitinni U2 en RED beita sér fyrir baráttunni gegn útbreiðslu AIDS í Afríku.
Uppboðið var vel sótt og mátti meðal annars sjá Harrison Ford, John McEnroe, Jenna og Barböru Bush, Sir Terence Conran, Chris Martin, Gayle King og Charlie Rose. Þá voru Tim Cook, frá Apple og Laureen Powell Jobs, ekkja Steve Jobs, einnig á staðnum.
Uppboðið var einnig sérstakt að því leytinu til að það voru tónlistaratriði á milli þess sem hlutir voru boðnir upp.
Í einu atriðini söng Bono lagið Get Lucky, með Nile Rodgers og hljómsveitinni Chic.
Hér að neðan má sjá myndband úr veislunni.