Kvikmyndasýningar fara fram í gamla herstöðvarkvikmyndahúsinu í tengslum við hátíðina. Til stóð að leikstjórinn Jim Jarmusch sæi um að velja kvikmyndirnar annan daginn og hljómsveitirnar sem fram koma hinn daginn.
Nú deila Jarmusch og breska leikkonan Tilda Swinton aftur á móti verkefninu sín á milli.

„Ég varð mjög ánægður þegar hún hafði samband en þetta kom mér ekki mjög á óvart því það hefur verið gríðarlegur áhugi á hátíðinni. Tónlistarvefsíðan Pitchfork hefur meðal annars fjallað mikið um hana,“ segir Tómas.
Leikkonan verður viðstödd hátíðina og gistir á svæðinu líkt og aðrir gestir hátíðarinnar og eru því líkur á að hátíðargestir muni rekast á stjörnuna á vappi um Ásbrú.
Rúm vika er í hátíðina og viðurkennir Tómas að enn þurfi að huga að ýmsu smálegu. „Nú er „crunch time“. Síminn stoppar ekki. Við höfum haft langan undirbúningstíma en það er auðvitað fullt sem þarf að gera og græja á síðustu metrunum,“ segir hann að lokum.
Hér má kaupa miða á hátíðina.

Leikkonan Tilda Swinton er fædd þann 5. nóvember árið 1960 og heitir fullu nafni Katherine Mathilda Swinton. Hún hóf leiklistarferil sinn árið 1986 og hefur síðan þá leikið í kvikmyndum á borð við The Beach, ævintýramyndunum The Chronicles of Narnia, Vanilla Sky, We Need to Talk About Kevin og nú síðast í Only Lovers Left Alive ásamt Tom Hiddleston og Miu Wasikowska.
Swinton þykir með einstakan fatastíl og er gjarnan á lista yfir best klæddu konur heims. Belgíski hönnuðurinn Haider Ackermann er í sérstöku dálæti hjá henni.
Þann 3. apríl árið 2011 sagði Vísir.is frá því að leikkonan væri stödd hér á landi og hefði meðal annars sést „í miðborg Reykjavíkur sem og í Hagkaup í Skeifunni“.
Ástæða heimsóknarinnar var tískuþáttur sem ljósmyndarinn Tim Walker gerði fyrir W Magazine. Myndirnar voru meðal annars teknar á Krýsuvíkursvæðinu.