„Þetta er vissulega mjög súrt og töluverð vonbrigði,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson sem lauk í gær keppni á öðru stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en leikið var í Tarragona á Spáni.
Birgir Leifur lék aðeins eina holu í gær en fresta varð keppni á þriðjudaginn vegna veðurs og þá átti Birgir aðeins eftir að leika eina holu á lokahringnum.
Samtals fór kylfingurinn hringina fjóra á þremur höggum undir pari og vantaði aðeins eitt högg til að komast í bráðabana um laust sæti á lokastigi úrtökumótsins fyrir hina vinsælu Evrópumótaröð.
„Það var nokkuð skrýtið að spila bara eina holu í dag og klára hringinn á tveimur dögum. Veðrið í dag var alltof gott og alls ekki mér í hag þar sem ég átti aðeins eina holu eftir. Ég lék síðasta hringinn í raun í virkilega slæmu veðri. Aðrir kylfingar fengu þar af leiðandi ákveðið forskot á mig í dag. Ég hefði haft mun meiri möguleika ef allir hefðu klárað síðasta hringinn við þessar aðstæður sem voru á þriðjudaginn.“
Birgir lék hringina fjóra á 281 höggi og hefði hann fengið fleiri holur við betri aðstæður í gær er spurning hvort Íslendingurinn hefði unnið upp eitt til tvö högg sem upp á vantaði.
„Spilamennska mín var nokkuð stöðug á þessu móti en mér fannst ég samt sem áður alltaf skilja eftir tvö til þrjú högg á hverjum hring. Ég átti aðeins of mikið inni að mínu mati. Það má svo lítið út af bera í svona mótum. Það eru allir svo jafnir og lítið pláss fyrir mistök.“
Núna er förinni heitið til Bandaríkjanna þar sem kylfingurinn mun reyna fyrir sér á úrtökumóti fyrir Web.com-mótaröðina.
„Ég er kominn á annað stig af þremur í þeirri forkeppni og mun taka þátt í móti í lok nóvember. Bandaríkjamenn hafa lagt niður öll úrtökumót fyrir PGA-mótaröðina og eru með aðra stóra mótaröð sem kallast Web.com-mótaröðin. Góður árangur á þeirri mótaröð gæti komið manni að lokum í PGA-mótaröðina og það er auðvitað það sem alla kylfinga dreymir um. Web.com er svakalega flott mótaröð sem er leikin útum allt í Bandaríkjunum og suður til Suður-Ameríku. Það eru miklir peningar á þessum mótum og góður stökkpallur fyrir mann.“
Birgir Leifur er mjög bjartsýnn á framhaldið og telur að stöðugur leikur sé lykillinn að góðum árangri. Leikur Íslendingsins hefur verið mjög stöðugur undanfarna mánuði.
Birgi dreymir um að komast á PGA-mótaröðina
Stefán Árni Pálsson skrifar
