Grunnarnir á plötunni eru teknir upp „live“ og fóru tökur fram í upptökuverinu Geimsteini í Keflavík en um upptökustjórn sá Stefán Örn Gunnlaugsson sem er einn sá vinsælasti í tónlistarheiminum hér á landi í dag.
„Við byrjuðum að vinna að plötunni árið 2008, þegar ég og Gunni trommari tókum upp flest lögin og markmiðið var að gera plötuna sjálfir en þá hrundi flakkarinn í gólfið og allt efnið eyðilagðist,“ útskýrir Eyþór Ingi. Fleiri áföll dundu yfir eftir þetta því reynt var að kýla á að klára upptökurnar árið 2012.
„Þegar ég byrjaði í Vesalingunum ætlaði ég líka að klára plötuna og var þá Þórður Gunnar Þorvaldsson upptökustjóri kominn inn í myndina. Hins vegar var ég mjög upptekinn í leikhúsinu þá og þegar það hægðist um hjá mér flutti Þórður Gunnar utan og verkefnið var aftur sett á ís.“

„Við lentum þó í áföllum þegar hún átti að fara í hljóðblöndun því Aron Þór Arnarson sem hljóðblandar plötuna fór á tónleikaferðalag með John Grant og var hún því að hluta til mixuð í lestum og á hótelherberginu,“ útskýrir Eyþór Ingi. Hins vegar varð Aron Þór veikur á lokasprettinum og því varð enn ein töfin.
„Þegar platan fór svo í masteringu hélt ég að hún væri í höfn en þá kom annað áfall.“ Þegar platan fór í masteringu hjá einum reyndasta upptökumanni landsins, Bjarna Braga Kjartanssyni, ákvað tölvan hans að gefa upp öndina.
„Þá leið mér eins og platan ætti hreinlega bara ekki að koma út,“ segir Eyþór léttur í lundu. Þá kom ný tölva til sögunnar og Bjarni Bragi náði að klára verkið með miklum sóma.

Flest lögin eru samin af Eyþóri Inga og Baldri Hjörleifssyni en þeir eru einnig æskuvinir. „Við unnum svo allir efnið í sameiningu þegar við æfðum fyrir upptökurnar,“ bætir Eyþór Ingi við. Þá eru einnig flestir textarnir ortir af Eyþóri Inga en fleiri eiga þó texta á plötunni. Allir eru þeir á íslensku nema einn, sem er á ensku.
Atómskáldin skipa Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Baldur Hjörleifsson gítarleikari, Helgi Reynir Jónsson gítar- og píanóleikari, Baldur Kristjánsson bassaleikari og Gunnar Leó Pálsson trommuleikari.
Frekari upplýsingar má finna hér.
