Pólverjar töpuðu aftur með einu marki - Svíþjóð og Frakkland komin áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 21:06 Nikola Karabatic átti flottan leik með Frökkum í kvöld. Mynd/AFP
Svíar og Frakkar eru með fullt hús og gulltryggt sæti í milliriðli eftir sigra í seinni leikjum dagsins á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku. Svíar unnu átta marka sigur á Hvít-Rússum en Frakkar unnu Pólverja í hörkuleik. Frakkar unnu eins marks sigur á Pólverjum, 28-27, í æsispennandi leik þar sem Pólverjar fengu möguleika á því að jafna metin í lokasókn leiksins. Pólverjar hafa þar með tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu með einu marki. Frakkar voru 15-14 yfir í hálfleik en Pólverjar skoruðu tvö fyrstu mörk seinni hálfleiksins og komust yfir í 16-15. Frakkar komust þremur mörkum yfir í seinni hálfleiknum en Pólverjar gáfust ekki upp og úr varð æsispennandi lokakafli í leiknum. Cyril Dumoulin varði lokaskotið og tryggðu Frökkum sigurinn. Svíar unnu öruggan átta marka sigur á Hvít-Rússum, 30-22 og hafa því unnið tvo fyrstu leiki sína með miklum mun. Svíar voru 13-10 yfir í hálfleik og gerðu endanlega út um leikinn með 9-2 spretti um miðjan seinni hálfleikinn. Fredrik Petersen skoraði 8 mörk fyrir Svía en maður leiksins var Andreas Nilsson sem skoraði sjö mörk úr sjö skotum. Siarhei Rutenka skoraði þrettán mörk fyrir Hvíta-Rússland en það dugði skammt.
EM 2014 karla Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport John Cena hættur að glíma Sport Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Sjá meira