Bæturnar hefðu mátt vera hærri

„Þetta var svo hrottafengin árás á umbjóðanda minn,“ segir hann. Umbjóðandi Björns er sá sem var haldið í tæpan sólarhring og meðal annars fluttur í hús á Stokkseyri. Þar var ráðist á manninn og hann meðal annars sleginn með belti og einhvers konar snúru í líkamann áður en hann var afklæddur og skilinn eftir nakinn með svartan plastpoka um sig í kjallara hússins. Hann var bundinn við burðarstoð með beisli um höfuðið þannig að mélin voru í munni hans.
Maðurinn krafðist rúmlega sex milljóna króna í bætur vegna árásarinnar. Hann fékk tvær og hálfa milljón í miskabætur og bætur fyrir vinnutap og tannlæknakostnað en ein tönn brotnaði í árásinni. Samtals nam bótafjárhæðin tæpum þremur milljónum króna.
Maðurinn getur ekki áfrýjað þeim þætti málsins sem snýr að bótunum til Hæstaréttar og aðeins verður fjallað um þann þátt málsins fyrir Hæstarétti ef ákæruvaldið eða hinir dæmdu áfrýja dómnum.
„Þeir eru allir samábyrgir fyrir allri fjárhæðinni,“ segir Björn.
Ríkissjóður ábyrgist greiðslu bótanna. En samkvæmt lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota kemur fram að ríkissjóður greiðir bætur fyrir miska upp að þremur milljónum króna.
Tengdar fréttir

Stokkseyrarmálið: „Ég þori ekki að vera í Reykjavík“
Tekin var skýrsla af seinni manninum sem sætti misþyrmingum í Stokkseyrarmálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis. Hann lýsir hryllilegum misþyrmingum sem hafi haft varanleg áhrif á hann.

Ákærðu í Stokkseyrarmálinu verða ekki viðstaddir vitnaleiðslur
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fjórum þeirra sem ákærðir eru í Stokkseyrarmálinu svokallaða yrði gert að víkja úr dómsal á meðan á vitnaleiðslum stendur.

Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu hefst í dag
Fimm menn ákærðir fyrir frelsissviptingar og sérstaklega hættulegar líkamsárásir.

Ákærðu fá ekki að vera viðstaddir vitnaleiðslur
Fyrirtaka í Stokkseyramálinu svokallaða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Þar var tekist á um hvort sakborningum í málinu verði gert að víkja úr dómsal meðan á vitnaleiðslum stendur. Aðalmeðferð í málinu hefst á mánudag og standa yfir í þrjá daga.

Stefán Logi: „Ég var mjög illa haldinn andlega og líkamlega“
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í Stokkseyrarmálinu svokallaða í morgun, þar sem fimm menn eru ákærðir meðal annars fyrir frelsissviptingar og sérstaklega hættulegar líkamsárásir.

Faðir Stokkseyrarfórnarlambsins: "Algerlega brotinn á líkama og sál“
Manninum sem var misþyrmt næturlangt á höfuðborgarsvæðinu og Stokkseyri er breyttur maður eftir aðfarirnar sagði faðir hans í skýrslutöku í dag.

Stefán Logi og Stefán Blackburn dæmdir í sex ára fangelsi
Dómur var kveðinn upp í Stokkseyrarmálinu rétt í þessu.

Stokkseyrarmálið: Vitni segist hafa logið við skýrslutöku
Kona sem stödd var í samkvæminu í Breiðholti þar sem árásirnar í Stokkseyrarmálinu svokallaða hófust, gaf skýrslu eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur.