
Össur hættir að styrkja Pistorius

Pistorius hefur notast við stoðtæki frá fyrirtækinu um árabil en hann er margverðlaunaður fyrir árangur sinn á hlaupabrautinni.
Össur bætist þannig í hóp annarra stuðningsaðila á borð við Nike Inc. og Luxottica Group SpA's Oakley, sem hafa hætt að styrkja Pistorius. Þá hefur allt kynningarefni með hlauparanum verið fjarlægt af veggjum fyrirtækisins á Íslandi.
„Það er á forræði suðurafrískra dómstóla að dæma í þessu máli,“ segir Sveinn Sölvason, fjármálastjóri Össurar, í samtali við Bloomberg-fréttastofuna í dag. „Við hjá Össuri tökum enga afstöðu í þessu máli varðandi það hvort maðurinn er sekur eða ekki. En við erum ekki lengur að styrkja Pistorius,“ segir Sveinn.
Pistorius skaut Reevu Steenkamp, fyrrverandi kærustu sína, til bana í Pretoríu í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
Tengdar fréttir

Fréttaskýring: Kaldrifjað morð eða hræðilegt slys?
Dómari í borginni Pretoria í Suður-Afríku hefur ákveðið að taka mál spretthlauparans Oscar Pistorius fyrir á morgun, eftir að búið er að taka blóðsýni úr honum. Til stóð að morðákæra gegn honum yrði tekin fyrir hjá dómstólum síðdegis í dag.

Sá Pistorius bera blóðugan líkamann niður tröppurnar
Segir vitnið að Pistorius hafi verið í miklu uppnámi og að þau hafi saman reynt að stöðva blæðinguna úr líkama hennar en án árangurs.

Neitar að hafa myrt kærustuna
Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Nike segir tímabundið upp samningi við Pistorius
Íþróttavöruframleiðandinn Nike hefur sagt tímabundið upp samningi sínum við frjálsíþróttakappann Oscar Pistorius. Suður-Afríkumaðurinn er sakaður um að hafa myrt kærustu sína að yfirlögðu ráði.

"Okkar hugur er hjá Oscari"
"Okkar hugur er hjá Oscari og aðstandendum þeirra sem hlut eiga að máli," segirJón Sigurðsson, forstjóri Össurar, um tíðindi dagsins af frjálsíþróttakappanum Oscar Pistorius.

Fyrstu viku réttarhaldanna yfir Pistorius lokið
Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, en hann skaut hana í gegnum lokaða baðherbergishurð á heimili sínu í Pretoríu í Suður-Afríku í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur.

Nike íhugar að hætta samstarfi við Pistorius
Nike íhugar nú að hætta samstarfi við suður-afríska spretthlauparann Oscar Pistorius en hann sætir nú ákæru fyrir að hafa skotið kærustu sína, fyrirsætuna, Reevu Steenkamp á heimili þeirra í Pretoríu í Suður-Afríku.

Setti á sig gervifæturna til að skjóta Steenkamp
Saksóknarar í máli suður-afríska spretthlauparans Oscar Pistorius segja morðið á Reeva Steenkamp, kærustu Pistorius, hafa verið skipulagt.

Segir Pistorius vera á barmi sjálfsmorðs
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius, sem sakaður er um að hafa myrt kærustu sína með köldu blóði í síðasta mánuði, er á barmi sjálfsmorðs. Þetta segir góðvinur Pistorius, Mike Azzie, í nýrri heimildarmynd breska ríkisútvarpsins um hlauparann.

Pistorius hágrét í réttarsal
Spretthlauparinn Oscar Pistorius grét í réttarsal í morgun þegar hann var formlega ákærður fyrir morðið á kærustu sinni á heimili þeirra í gærmorgun.

Á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var formlega ákærður í dag fyrir morð.

Heldur sig frá hlaupabrautinni
Oscar Pistorius, suður-afríski spretthlauparinn, sem grunaður er um að hafa myrt kærustu sína í febrúar síðastliðnum, er ekki farinn að æfa aftur, hefur bandaríska fréttastofan CNN eftir frænda hans.

Össur stendur með aflimuðum íþróttamanni
Össur hf. gerir alvarlegar athugasemdir við þær prófanir sem Alþjóða frjálsíþróttasambandið (IAAF) hefur látið gera á gervifótum spretthlauparans Oscars Pistorius.

Fæturnir frá Össuri eru of góðir
Alþjóða frjálsíþróttasambandið sagði í dag að gervifæturnir sem Össur smíðaði fyrir suður-afríska hlauparann Oscar Pistorius gefi honum alltof mikið forskot á aðra keppendur.

Blóðug krikketkylfa á heimili Pistoriusar
Lögreglan í Suður Afríku fann blóðuga krikketkylfu á heimili hlauparans Oscars Pistoriusar. Pistorius hefur verið í haldi lögreglu frá því á fimmtudag, grunaður um að hafa skotið 29 ára gamla unnustu sína, Reevu Steenkamp, til bana.

Spretthlauparinn segist saklaus
Oscar Pistorius var leiddur fyrir rétt í dag.