Veiði

Er til fullkomin fluga í vorveiðina?

Karl Lúðvíksson skrifar
Nú er að styttast í veiðitímann og nokkuð víst að fiðringur og spenna eru farin að gera vart við sig hjá veiðimönnum.

Vorveiðin verður líklega nokkuð seinna á ferðinni fyrir norðan meira að segja seinna en menn þar um slóðir eiga að venjast því mikill snjór er víða við vötn og þau flest ísilögð en þó ekki öll.  Á suðvesturlandi gæti ræst úr veiðinni í vötnunum ef það hlánar en það er samt nokkuð ljóst að ís verður víða við þau 1. apríl.  Þeir sem ætla að láta reyna á veiðina eru margir farnir að raða flugunum í boxin og velta fyrir sér hvaða flugu verður kastað fyrst.  Þetta er alltaf ákveðið lúxusvandamál, þ.e.a.s. að horfa í boxið fullt af vænlegum flugum og velja fluguna sem byrjar tímabilið.

Ein af þessum flugum sem hefur í gegnum tíðina verið mjög vinsæl er Mickey Finn en hún þykir sérstaklega veiðin  í þeim vötnum þar sem urriði er uppistaðan af veiðinni og þá jafn sterkust á vorin.  Kannski er það liturinn sem gerir fiskinn forvitinn og hvetur hann til töku enda er fiskurinn búinn að vera í heldur litlu æti um veturinn þó það sé ekki algilt.  Þegar Mickey Finn er strippuð í vatninu getur verið ákaflega gaman að sjá urriðana stökkva grimmilega á hana.  Best þykir að veiða hana með sökk enda enda sökklínu en þó eru margir sem nota bara flotlínu t.d. í Elliðavatni.  Ef þú átt hana ekki þarftu að kaupa eða hnýta eitt eintak því þetta er fluga sem yfirleitt kemur manni þægilega á óvart.






×