Veiðifélag Kjósarhrepps og Veiðifélagið Hreggnasi ehf hafa framlengt samning um veiðirétt Laxár í Kjós og Bugðu til næstu fimm ára.
Laxá í Kjós og Bugða eru meðal þekktustu og gjöfulustu laxveiðiáa landsins en heildarveiðin í ánni í fyrra var 1281 lax. Eingöngu er veitt á flugu í ánni og sleppihlutfallið á veiddum laxi er með því hæsta á landinu. Hreggnasi hefur haft aðkomu að vatnasvæðinu frá árinu 2006. Á þeim tíma hafa verið gerðar miklar breytingar á aðbúnaði veiðimanna, ekki síst með byggingu glæsilegs veiðihúss árið 2007. Eins hafa verið gerðar breytingar á fyrirkomulagi veiða á vantasvæðinu sem fallið hafa veiðimönnum vel í geð, því sala veiðileyfa fyrir sumarið hefur gengið mjög vel. Vorveiðin verður áfram á boðstólnum en hún er einkar eftirsótt og dæmi eru um að veiðimenn sem vilja veiða hana á næsta ári að vori til séu þegar farnir að reyna festa sér daga enda komast þarna færri að en vilja.
Hreggnasi áfram með Laxá í Kjós
