Einn aðallýsenda UFC-sambandsins, John Gooden, er staddur hér á landi ásamt tökuliði sínu. Viðfangsefnið eru bardagakapparnir Gunnar Nelson og Conor McGregor en þeir félagar eru þessa dagana við æfingar í Mjölniskastalanum.
Gunnar mætir Zak Cummings 19.júlí og McGregor mætir Diego Brandao í Dublin.
Þessir tveir bardagar verða aðalnúmerið þetta kvöld sem verður sýnt beint á Stöð2 Sport.