Það er misjafnt eftir hverjum og einum hversu mikið af sleipiefni maður vill nota en það ætti að vera óhætt að nota sleipiefni, og eins mikið af því og þú vilt, í hvert sinn sem þú stundar kynlíf. Þó ber að hafa í huga að sleipiefni kemur ekki í staðinn fyrir kynferðislega örvun.
Það eru til margar gerðir af sleipiefnum og því þarf að vanda valið og prófa sig áfram þar til maður finnur það sem hentar best. Flest allir sleipiefnaframleiðendur framleiða allskyns tegundir sleipiefna sem falla í neðangreinda flokka.
Vatnsleysanlegt sleipiefni (water based) má nota með smokkum og kynlífstækjum. Það þornar svo þú gætir þurft að nota meira af því en af annars konar sleipiefnum.
Sílikon sleipiefni (silicon based) endast lengur og er hægt að nota í vatni. Þó geta skemmt kynlífstæki úr sílikoni og því ber að vara að nota það ekki með slíku.
Olíu sleipiefni (oil based) endast lengur en vatnsleysanlegt en má ekki nota með latex smokkum.

Það er gott að hafa í huga að sleipiefni geta verið með sykrum í (glycerin), rotvarnarefnum, ilmefnum, örvandi efnum og bragðefnum. Ef þú vilt forðast þessi efni þá ættu lífræn sleipiefni að vera örugg hvað það varðar en það er þó alltaf vissara að lesa sér til um innihaldið á umbúðnum.
Þá virðast sum sleipiefni innihalda efni sem geta dregið úr getu sáðfruma og því er mikilvægt að passa að sleipiefnið hjálpi frekar en að hamla.
Leggangaþurrkur getur orðið vandamál og því getur verið gott að fá rakagefandi stíla fyrir slíkt. Það er tæknilega ekki sleipiefni.

Olíur og vaselín eru heldur ekki góð sleipiefni og geta skemmt smokkinn og alið á bakteríum á kynfærum.
Ef það eru einhvers konar örvandi eða deyfandi áhrif í sleipiefninu þá ber að nálgast slíkt með varúð.
Deyfing getur hamlað líkamlegri upplifun og gert þér erfitt að skynja unað, en einnig sársauka. Sleipiefni sem innihalda slíkt eru því ekki að betrumbæta kynlífið heldur draga úr því.
Sömu sögu má segja með örvandi efnum eins og cayenne pipar, þau geta sviðið.
Sleipiefni eru sérhönnuð fyrir kynfæri og því það hentugasta til að nota ef smyrja á einhverju á þau. Mundu bara að prófa fyrst í munni áður en þú smyrð á kynfærin.
