„Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Gaflaraleikhúsið og Geðhjálp eru í skemmtilegu samstarfi þessa dagana sem snýr að því að finna fyndnasta hlátur Íslands. Landsmenn eru hvattir til að senda inn myndband af þeim sem þeim finnst búa yfir fyndnasta hlátrinum en sigurvegari fær gjafabréf á sýninguna Tóm hamingja sem leikhópurinn sýnir við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu. Lífið samstarf 20.2.2025 08:54
Við getum gert fullt til að draga úr líkum á heilabilun Dr. Thomas Ragnar Wood, eða Tommy eins og hann er kallaður, prófessor í barnalækningum og taugavísindum, var gestur í þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms á dögunum og ræddi um hvernig daglegar venjur og lífsstíll geta haft afgerandi áhrif á heilsu heilans og minnkað líkur á heilabilun um helming og jafnvel enn meir. Lífið 19.2.2025 09:34
Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag „Nei, nei, þetta er nú þegar í gildi,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun um Unndísi; Nýtt verkfæri sem vinnustaðir geta nýtt sér þegar þau ráða fólk sem hefur af ýmsum ástæðum verið frá vinnumarkaði um tíma, telst með skerta starfsgetu og er komið á hlutaörorku. Atvinnulíf 19.2.2025 07:02
„Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Lífið samstarf 13.2.2025 12:36
Vefur um útivist í loftið Nýr upplýsingavefur um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu er kominn í loftið. Hann ber heitið utumallt.is og var formlega tekinn í notkun á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) síðastliðinn mánudag. Lífið 7. febrúar 2025 14:15
Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 Ágúst Ingi Davíðsson, landsliðsmaður Íslands í fimleikum og keppandi fyrir Gerplu, hefur nýtt vörur frá Natures Aid til að styrkja líkamann og styðja við endurheimt líkamans með frábærum árangri. Lífið samstarf 7. febrúar 2025 14:10
„Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Landssamtökin Geðhjálp ýttu úr vör í upphafi þorrans árlegu 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín og er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Hér segja fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. og lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir lesendum frá G-vítamínunum sínum. Lífið samstarf 7. febrúar 2025 12:28
Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Flestir hugsa um meltinguna í tengslum við líkamlega líðan, en hún hefur líka bein áhrif á andlega heilsu. Fáir vita að um 90% af serótóníni – oft kallað hamingjuhormón líkamans – myndast í þörmunum. Þegar meltingin er í ólagi getur það því haft áhrif á bæði líkamlega og andlega vellíðan. Lífið samstarf 7. febrúar 2025 10:27
Í samkeppni við Noona með Sinna Inga Tinna Sigurðardóttir, eigandi Dineout.is, opnaði nýlega nýtt markaðstorg á vefnum sinna.is þar sem hægt er að bóka tíma í hárgreiðslu, á snyrtistofu, heilsulind, nudd og ýmsa þjálfun. Inga Tinna segir þau leggja áherslu á heilsu og vellíðan. Um 60 rekstraraðilar hafa skráð sig á síðuna. Neytendur 7. febrúar 2025 06:46
Iðjuþjálfi á Nesinu fer sínar eigin leiðir í skólamat Iðjuþjálfinn Sólveig Kristín Björgólfsdóttir hefur vakið athygli fyrir skrif sín og gagnrýni á skólamat barna í grunnskólum. Lífið 3. febrúar 2025 13:01
Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Opnunarhátíð árlegs fjáröflungar- og vitundarvakningarátaks Krafts, Lífið er núna, fór fram í síðustu viku með pompi og prakt. Rúmlega tvöhundruð manns mættu í verslun Rammagerðarinnar þar sem var margt um manninn og gleði í lofti. Lífið 31. janúar 2025 20:01
Hátindar Öræfajökuls að vori Fjallgöngur á hæstu tinda Öræfajökuls á vordögum hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Um tíma má segja að það hafi verið í tísku að ganga á Hvannadalshnúk og stundum var fólk að taka slíka ákvörðun með skömmum fyrirvara. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands skrifar um mikilvægi þess að huga að undirbúningi og þjálfun tímanlega fyrir krefjandi jökulgöngur. Lífið samstarf 31. janúar 2025 15:44
Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs Sykur úr sætindum, ávöxtum og öðrum matvælum getur haft áhrif á húðina okkar og skert teygjanleika hennar. Lífið samstarf 31. janúar 2025 09:34
Geðveikt fjör á Bessastöðum Þriðjudaginn 28. janúar heimsótti Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, Bessastaði þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, tók á móti G vítamín geðræktardagatalinu. Með Svövu í för voru þær Erla Rut Mathiesen og Guðný Guðmundsdóttir verkefnastjórar hjá Geðhjálp. Lífið samstarf 30. janúar 2025 15:27
„Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Hekla Guðmundsdóttir hefur langa reynslu af vandamálum tengdum meltingu sem og lyfjum og bætiefnum sem eiga að aðstoða við þau, en fátt sem ekkert hefur virkað jafn vel og að taka inn Digest Gold meltingarensímin. Lífið samstarf 30. janúar 2025 10:31
Gerum betur og setjum heilsuna í forgang Sífellt fleiri gera sér betur grein fyrir því hvað geðheilbrigði skiptir okkur öll miklu máli með sama hætti og líkamlegt heilbrigði. Landssamtökin Geðhjálp ýttu úr vör í upphafi þorrans árlegu 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín og er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Lífið samstarf 29. janúar 2025 13:13
„Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Ebba Guðný Guðmundsdóttir hefur áralanga reynslu og þekkingu á heilsueflandi eiginleikum eplaediks og mælir eindregið með Apple Cider töflunum frá New Nordic fyrir þá sem vilja bæta meltinguna og draga úr óþægindum sem stafa af of litlu magni magasýra. Lífið samstarf 29. janúar 2025 08:56
Helmingur labbar út þegar komið er að því að teygja Sigrún Kjartansdóttir jóga- og bandvefslosunarkennari segir að langflestum hætti til þess að teygja ekki nóg eða alls ekkert eftir æfingar. Hún segir að það hafi gríðarleg áhrif á vellíðan. Lífið 28. janúar 2025 17:00
„Ég vissi að minn bati væri á mína ábyrgð“ Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi en þess ber þó að geta að margir eru vangreindir og einkennalausir. Ýmsir þættir geti ýtt undir hættuna á blóðtappa en stundum er engin augljós eða þekkt ástæða. Þannig var það í tilfelli Mörthu Lind Róbertsdóttur, sem greindist með blóðtappa í báðum lungum í lok ágúst árið 2023. Þriggja barna móðir sem lifði heilbrigðum lífsstíl og hafði aldrei kennt sér meins. Lífið 28. janúar 2025 07:02
Rautt kjöt: Goðsagnir og vanþekking Einkenni tímanna sem við lifum á er þreytandi skrúðganga fólks án nauðsynlegrar sérþekkingar sem þykist hæft til að tjá sig um flókin málefni krefjandi ára rannsókna og djúprar hugsunar. Opinberar persónur stíga iðulega fram með álit á sviðum sem eru langt utan sérsviðs þeirra. Skoðun 27. janúar 2025 11:01
Hreyfði sig í 30 mínútur á hverjum einasta degi í heilt ár Fjölmiðlakonan Þórdís Valsdóttir setti sér það markmið að hreyfa sig í að minnsta kosti 30 mínútur á hverjum einasta degi í heilt ár og missti aldrei úr dag. Lífið 27. janúar 2025 11:01
Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Landlæknisembættið ítrekar í tilkynningu að ráðleggingar embættisins um mataræði taka mið af þörfum heilbrigðra einstaklinga og fela ekki í sér boð eða bönn. Meginstef ráðlegginga þeirra sé að fólk borði fjölbreytta fæðu og sé jafnframt meðvitað um mögulega skaðsemi þess að borða óhóflega mikið af rauðu kjöti, gjörunnum matvælum og vörum sem innihalda mikið af mettaðri fitu og/eða viðbættum sykri. Innlent 23. janúar 2025 14:13
Aldrei of mikið af G-vítamíni Landssamtökin Geðhjálp ýta úr vör á morgun árlegu 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G vítamín. Þetta er fimmta árið í röð sem Geðhjálp stendur fyrir átakinu sem hefst alltaf á bóndadegi, fyrsta degi í þorra. Lífið samstarf 23. janúar 2025 11:25
Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Hálfíslenskur læknir sem sérhæfir sig meðal annars í lífsstílslækningum segir samfélagsmiðla sífellt valda fólki meiri streitu. Erfitt sé að forðast alla streitu en hann nefnir nokkur ráð hvernig megi takmarka hana. Innlent 23. janúar 2025 00:04
Einn af hverjum tuttugu fór í ljós á síðustu tólf mánuðum Hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós síðustu tólf mánuði á Íslandi er nú fimm prósent og er það einu prósentustigi lægra en í síðustu könnun sem gerð var 2022. Innlent 22. janúar 2025 14:31