
Vettel neitar að gefa titilbaráttuna upp á bátinn

Vettel er 95 stigum á eftir landa sínum Nico Rosberg eftir níu keppnir af nítján. Enn er því fræðilegur möguleiki á að Vettel nái fimmta heimsmeistaratitlinum í röð.
„Ef maður horfir á stigin og stærðfræðina getum við ennþá barist um heimsmeistaratitil, þannig að það væri heimskulegt að segja að við eigum ekki möguleika,“ sagði Red Bull ökumaðurinn.
Hann viðurkennir þó að það verði erfitt að ná Mercedes mönnum.
„Ef maður er raunsær, þá er Mercedes í þeirri stöðu að geta unnið hverja keppni og geta náð fyrsta og öðru sæti, án þess að nokkur geti truflað þá neitt of mikið nema að eitthvað sé að hjá þeim,“ hélt Vettel áfram.
Fernando Alonso, ökumaður Ferrari sem er 17 stigum yfir Vettel hefur þegar viðurkennt að baráttan um heimsmeistaratitil ökumanna sé búin. Nú er bara spurning um hvort Lewis Hamilton eða Rosberg vinni.
„Ég tel að ef einhver annar en Rosberg eða Hamilton segist trúa því að hann geti orðið heimsmeistari í ár þá er hann að ljúga,“ sagði Alonso.
Tengdar fréttir

Rosberg er ekki Þjóðverji
Bretinn Lewis Hamilton er heldur betur búinn að kynda bálið fyrir þýska kappaksturinn í Formúlu 1.

Bílskúrinn: Kristjáns-horn og klöguskjóður
Eftir gríðarlega spennandi breskan kappakstur þar sem heimamaðurinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann er kominn tími til að skoða Bílskúrinn, léttu hliðina á Formúlu 1 á Vísi.

Red Bull bíllinn betri en Renault vélin
Daniel Ricciardo ökumaður Red Bull telur að bilið á milli Renault og Mercedes vélanna sé sóun á getu Red Bull bílsins.

Lewis Hamilton vann á heimavelli
Lewis Hamilton á Mercedes. vann breska kappaksturinn. Eftir gríðarlega dramatíska keppni. Valtteri Bottas á Williams var annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Samantekt frá breska kappakstrinum
Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Bretlandi í gær og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Bottas: Mercedes gæti fundið fyrir FRIC banni
Valtteri Bottas, ökumaður Williams telur að Mercedes liðið verði fyrir mestum áhrifum ef tengd fram og aftur fjöðrun (FRIC) verður bönnuð. Bottas telur að bannið myndi ekki hafa áhrif á Williams liðið.