Annar sérfræðingur fellur í Síerra Leone

Cole var einn þeirra sem leiddi baráttuna gegn Ebólunni í Síerra Leóne og er fráfall hans talið mikið reiðarslag fyrir heilbrigðisyfirvöld en veiran hefur breiðst ógnarhratt út í landinu á síðustu vikum. Mikill skortur er nú á læknum í Síerra Leone en andlát Coles ber að einungis tveimur vikum eftir fráfall dr. Sheiks Omarrs Khan sem stjórnaði aðgerðum gegn veirunni í austurhluta landins.
Læknirinn er talinn hafa smitast þegar hann vitjaði sjúklings á Connaught sjúkrahúsinu í höfuðborg landsins, Freetown. Sjúklingurinn á að hafa hrasað og Cole því ákveðið að grípa hann áður en hann félli til jarðar.
Dr. Cole „var einstaklega hæfur læknir en þeir eru ekki á hverju strái hér,“ sagði fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins Síerra Leone við þarlenda fjölmiðla. „Þú getur ímyndað þér hvaða áhrif þetta hefur á yngri læknanna. Þetta er eins og að missa hershöfðingjann sinn í bardaga. Þetta bætir einungis á þjáningarnar. Þetta er ekki gott. Þegar þrengt er að heilbrigðiskerfinu þínu þá er þetta einfaldlega of mikið.
Ebóla er bráðsmitandi og heilbrigðisstarfsfólk á í mikill hættu að næla sér í veiruna.i.
Engin lækning er til við Ebólu sem getur dregið níu af hverjum tíu til dauða sem smitast af veirunni en dánarhlutfall faraldursins sem nú geisar er um 60 prósent. Alls hafa um 1100 látið lífið í Gíneu, Líberíu, Nígeríu og Síerra Leone af völdum sjúkdómsins og eru heilbrigðiskerfi fjölda landa á vesturströnd Afríku í lamasessi vegna útbreiðslu veirunnar.
Ebóla dregur nafn sitt af fljóti í Austur-Kongó þar sem veiran kom fyrst upp árið 1976. Þá dró hún 280 manns til dauða en alls hafa 1600 manns fallið af hennar völdum frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar. Í kjölfar smits herjar veiran á nær öll líffæri manneskjunnar og étur upp vefi líkamans.
Tengdar fréttir

Landamærum lokað til að hefta útbreiðslu Ebólunnar
Samkomur hafa verið bannaðar og samfélög einangruð til að reyna að stemma stigu við sjúkdómnum sem hefur dregið um 700 manns til dauða á árinu.

Óttast að filippseyskir farandverkamenn hafi smitast af e-bólu
Heilbrigðisyfirvöld á Filippseyjum óttast að sjö farandverkamenn sem unnið höfðu í Síerra Leone séu smitaðir af e-bólu veirunni.

Ebóla berst til Nígeríu
Stjórnvöld í Nígeríu hafa staðfest að líberskur maður hefði látist úr Ebóluveiru þar í landi, fjölmennasta ríki í Afríku.

Hætta ferðamanna á smiti hverfandi
Ekkert lát er á sýkingahrinunni af völdum ebólaveiru sem hófst í Gíneu í byrjun febrúar á þessu ári, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins.

Tveir Bandaríkjamenn greinast með Ebóla
Fjölmargir læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem vinna að meðhöndlun ebólufaraldursins í Vestur-Afríku hafa greinst með veiruna.

Maðurinn sem leiddi baráttuna gegn Ebólu sýktist sjálfur
Litið er á Sheik Umar Khan sem þjóðarhetju í Síerra Leóne vegna framlags hans til læknavísindanna.

WHO biður þjóðir heimsins um hjálp gegn Ebólu
Forstöðumaður WHO sagði þau lönd sem hafi orðið fyrir smiti ekki hafa burði til að kveða svo stóran faraldur niður sjálf.

Skorað á WHO að útvega Afríku ebólalyf
Sérfræðingar segja að til séu nokkur mismunandi lyf og bóluefni sem hægt væri að nota til þess að berjast gegn þessum illskeytta sjúkdómi.

Ebólasmitaður maður til Bandaríkjanna
Sjúkrahús í Atlanta í Bandaríkjunum býr sig nú undir að taka á móti bandarískum hjálparstarfsmanni sem smitaðist af hinnum banvæna ebóla-vírusi í Vestur-Afríku.

Íslendingar hvattir til að ferðast ekki til Vestur-Afríku
Sóttvarnarlæknir mælist til þess að ekki sé ferðast til þeirra landa sem verst hafa orðið úti vegna ebólunnar.

Hægt að vinna bug á ebólafaraldrinum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir brýna þörf á alþjóðlegu átaki til að stöðva útbreiðslu veirunnar.

Yfirvöld í Nígeríu einangra spítala í sóttkví
Ebóla-veiran skilur eftir sig sviðna jörð í Afríku.

Bretar óttast ebólufaraldur
Ebólaveira er alvarleg ógn við Bretland að sögn Philip Hammond, utanríkisráðherra landsins.

Hæsta viðbúnaðarstigi lýst yfir
Yfirvöld í Nígeríu hafa lýst yfir hæsta viðbúnaðarstigi eftir að karlmaður frá Líberíu lést úr ebólu þar í landi í vikunni.

Ebóla heldur áfram að breiðast út
Tveir hafa nú greinst á skömmum tíma með ebólu í Nígeríu, fjölmennasta ríki í Afríku. Annar þeirra lést í síðustu viku og er læknir hans nú sýktur af þessari mannskæðu veiru.

Meira en þúsund manns hafa látið lífið
Einungis tveir Bandaríkjamenn og einn Spánverji hafa til þessa fengið að njóta góðs af lyfjum. Afríkubúar hafa hins vegar enn engin lyf fengið.