Grosjean: Lotusbíllinn verður betri á næsta ári Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 12. ágúst 2014 23:00 Grosjean hefur heimsótt marga malargryfjuna á stjórnlausum bíl í ár. Vísir/Getty
Romain Grosjean, annar ökumanna Lotus liðsins segist sannfærður um að liðinu takist að hanna betri bíl fyrir næsta tímabil. Eftir að hafa átt góðu gengi að fagna árið 2013 hefur það sem af er 2014 verið afleitt. Grosjean hefur gert liðinu ljóst að hann vilji bíl sem getur keppt um fyrsta sæti. Líklegt þykir að Lotus skipti yfir í Mercedes vélar fyrir næsta tímabil en Renault vélin hefur valdið gríðarlegum vandræðum í ár. „Ég er 99,99% viss um að liðið geri betur á næsta ári, svo ég minnist ekki á vélina. Þetta hefur verið erfitt tímabil þar sem við byrjuðum illa og reyndum að byggja ofan á lélegan bíl en á næsta ári horfir til betri vegar. Hvort sem við skiptum um vélaframleiðanda eða ekki,“ sagði franski ökumaðurinn. „Stundum er þetta erfitt því ég hef mikið keppnisskap og vil vinna keppnir, berjast í fremstu röð og ég vil að hlutirnir gangi betur. Stundum ganga þeir ekki sem skyldi en þá tekur maður því og rembist áfram,“ hélt Grosjean áfram. Grosjean gaf það út fyrir sumarfrí að hann hugðist velta því fyrir sér hvar hann vill aka á næsta ári. Hugsanlega er hann með einhver tilboð á borðinu og gæti því mögulega verið á förum frá Lotus. Sérstaklega gæti hann verið að hugsa sér til hreyfings ef hann sér ekki fram á að bíllinn verði samkeppnishæfur á næsta tímabili. „Ég held að þetta lúri alltaf í kollinum á manni. Ég vil fara að vinna keppnir fljótlega og við erum að vinna í því. Auðvitað hugsa ég um framtíðina… ég mun gera það í sumarfríinu,“ sagði Romain Grosjean.
Formúla Tengdar fréttir Albers: Ökumenn verða að standa sig til að halda sætinu Christijan Albers liðsstjóri Caterham liðsins segir að ökumenn liðsins verði að standa sig ef þeir ætla sér að klára tímabilið með liðinu. 8. ágúst 2014 22:30 Alonso: Ekkert öðruvísi að vinna með Kimi Fernando Alonso segir að það sé ekkert öðruvísi að vinna með Kimi Raikkonen en öðrum liðsfélögum sem hann hefur haft í gegnum tíðina. 12. ágúst 2014 07:30 Pirelli hefur ekkert á móti fleiri keppnum Ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli sem sér Formúlu 1 liðum fyrir dekkjum segist ekki hafa neitt á móti lengra tímabili með fleiri keppnum. 10. ágúst 2014 23:00 Williams vill fara að vinna keppnir Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum. 5. ágúst 2014 22:00 Mikil vinna framundan hjá Ferrari Marco Mattiacci, liðsstjóri Ferrari segir að liðsins bíði mikil vinna. Liðið ætli sér aftur á toppinn en muni þurfa að hafa fyrir því. 1. ágúst 2014 15:00 Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi. 29. júlí 2014 22:45 Bottas: Williams verður áfram í baráttunni 2015 Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1 segist sannfærður um að góður árangur liðsins að undanförnu muni halda áfram á næsta ári. 9. ágúst 2014 23:15 Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Enski boltinn Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport Fleiri fréttir Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Heimsmeistarinn vill gleyma því að hann keyri í Formúlu 1 Sjáðu hamaganginn þegar Norris varð heimsmeistari í fyrsta sinn Klökkur Norris: „Ég er ekki að gráta“ Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Svona verða Norris, Verstappen eða Piastri heimsmeistarar í dag Verstappen á ráspól og allt opið í lokakeppninni McLaren ætlar að nota heilbrigða skynsemi í ákvörðunum sínum Verstappen fær nýjan liðsfélaga Hótað lífláti eftir mistökin Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Verstappen stal sigrinum og allt galopið fyrir lokakeppnina Ferrari bílarnir í henglum og verða bara verri Piastri vann sprettkeppnina og dró á Norris Vill ekki hjálpa liðsfélaganum að vinna heimsmeistaratitilinn Svakaleg spenna: Svona verður Norris heimsmeistari á sunnudaginn Vinur Schumacher segir að almenningur muni aldrei sjá hann aftur Hamilton líður ömurlega á versta tímabili ferilsins Helgi Verstappen varð enn betri: Norris og Piastri dæmdir úr leik Óvæntar fréttir frá Las Vegas: Norris og Piastri gætu verið dæmdir úr leik Verstappen vann í Las Vegas og minnkaði forskot Norris Norris á pól og heimsmeistaratitillinn í augsýn Fjórtán ára dóttir Häkkinens gengur til liðs við McLaren Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Forsetinn gagnrýnir Formúlu 1-stjörnurnar: „Ættu að tala minna“ Lewis Hamilton segist vera fastur í martröð Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Norris með aðra höndina á titlinum Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Sjá meira
Albers: Ökumenn verða að standa sig til að halda sætinu Christijan Albers liðsstjóri Caterham liðsins segir að ökumenn liðsins verði að standa sig ef þeir ætla sér að klára tímabilið með liðinu. 8. ágúst 2014 22:30
Alonso: Ekkert öðruvísi að vinna með Kimi Fernando Alonso segir að það sé ekkert öðruvísi að vinna með Kimi Raikkonen en öðrum liðsfélögum sem hann hefur haft í gegnum tíðina. 12. ágúst 2014 07:30
Pirelli hefur ekkert á móti fleiri keppnum Ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli sem sér Formúlu 1 liðum fyrir dekkjum segist ekki hafa neitt á móti lengra tímabili með fleiri keppnum. 10. ágúst 2014 23:00
Williams vill fara að vinna keppnir Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum. 5. ágúst 2014 22:00
Mikil vinna framundan hjá Ferrari Marco Mattiacci, liðsstjóri Ferrari segir að liðsins bíði mikil vinna. Liðið ætli sér aftur á toppinn en muni þurfa að hafa fyrir því. 1. ágúst 2014 15:00
Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi. 29. júlí 2014 22:45
Bottas: Williams verður áfram í baráttunni 2015 Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1 segist sannfærður um að góður árangur liðsins að undanförnu muni halda áfram á næsta ári. 9. ágúst 2014 23:15