Fáránlega flott innrétting Citroën DS Finnur Thorlacius skrifar 19. september 2014 15:45 Mögnuð hönnun hjá Citroën.
DS bíllinn sem Citroën ætlar að kynna á bílasýningunni í París í næsta mánuði er hreint listaverk á að líta og líklega hefur aldrei sést eins mögnuð innrétting í bíl. Þar hafa hönnuðir Citroën fengið að leika lausum hala og fá sína villtustu drauma uppfyllta. Eins og hér hefur áður verið greint frá verða DS bílar Citroën að lúxusbílamerki franska bílaframleiðandans og munu ekki einu sinni bera Citroën merkið. Í dag er helsti sölubíll Citroën sem ber DS merkið Citroën DS3 bíllinn sem helst keppir við vandaða smíði Mini bíla, enda í sama stærðarflokki. Eins og sést á þessum myndum eru álíka mörg horn í innréttingu hans og í stærðfræðibók um hornafræði, en flott er hún, með magnað efnisval og útfærslur.Flott sæti og stýri........reyndar bara allt.Vandað til verks í hvívetna.Ekki slæmur staður til að vera á.Óvenjulegt þak.Það verður vart frumlegra né framúrstefnulegra.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent