Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur þurft að gera breytingu á landliðshópi sínum fyrir æfingaferð til Svíþjóðar.
Ágúst valdi nýliðanna Bryndísi Elínu Halldórsdóttir úr Val í stað Hildigunnar Einarsdóttur sem varð að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Bryndís Elín er línumaður og hefur skorað 12 mörk í fyrstu fjórum leikjum Valsliðsins í Olís-deildinni. Hún er einnig öflugur varnarmaður sem hefur fyllt í skarðið sem Anna Úrsúla Guðmunsdóttir skildi eftir sig í Valsvörninni.
Kvennalandslið fer á morgun til Svíþjóðar þar sem liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Svíum.
