Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 19. desember 2025 21:20 Hörkuleikur í kvöld í Garðabæ. Hulda Margrét Stjarnan vann 108-104 sigur á Álftanesi í grannaslag kvöldsins í Bónus-deild karla eftir stórskemmtilegan leik. Leikurinn byrjaði af krafti og settu gestirnir frá Álftanesi nánast allar körfur niður í fyrsta leikhluta. Álftanes leiddi með 12 stigum þegar fyrsta leikhluta lauk. Stjörnumönnum gekk vel að brúa bilið í öðrum leikhluta á meðan Álftnesingar misstu boltann sífellt klaufalega og áttu erfitt með að koma boltanum í körfuna. Á lokasekúndum fyrri hálfleiks komust Stjörnumenn í fyrsta sinn yfir í leiknum þegar Orri Gunnarsson setti niður snyrtilega þriggja stiga körfu. Stjarnan fór inn í hálfleikinn með þriggja stiga forskot og frábæran viðsnúning frá því í fyrsta leikhluta. Stjörnumönnum tókst að auka forskot sitt enn frekar í þriðja leikhluta og fóru inn í þann fjórða með 9 stiga forskot. Fjórði hluti byrjaði afskaplega vel hjá Stjörnumönnum sem komust fljótlega í 14 stiga forskot, en það virtist lítið ganga upp hjá gestunum bæði varnarlega og sóknarlega. Það breyttist fljótlega aftur þegar Álftanes tókst að minnka muninn í fjögur stig á lokamínútu leiksins. Spennandi lokamínúta en Stjörnunni tókst að sigla sigrinum heim og lauk leiknum, 108-104. Atvik leiksins Lokasekúndar leiksins þegar Álftanes hafði tækifæri að landa sigrinum eða í það minnsta koma leiknum í framlenginu. Stjörnur og skúrkar Orri Gunnarsson var markahæstur hjá Stjörnunni með 21 stig, enda var hann öflugur í þriggja stiga körfunum í kvöld. Giannis kom næst með 18 stig og Ægir með 16. Orri Gunnarsson frábær í sigri Stjörnunar í kvöld.Hulda Margrét Ade var markahæstur hjá Álftnesingum með 24 stig, Rati þar næstur með 21 og David með 19. Ade öflugur í sókninni hjá Álftnesingum.Hulda Margrét Stemning og umgjörð Frábær stemning í ÞG-höllinni í Garðabæ. Mikil læti og heyrðist vel í stuðningsmönnum. Föstudagsstemmari í ÞG-höllinni.Hulda Margrét Dómarar Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Bjarni Rúnar Lárusson stóðu vaktina á þessu fallega föstudagskvöldi í desember og stóðu sig með prýði. Kristinn og Bjarni, báðir reynslumiklir körfuboltadómarar.Hulda Margrét Stjarnan UMF Álftanes Bónus-deild karla
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum