

Hann leitaði á bráðamóttökuna vegna verkja fyrir brjósti og öndunarerfiðleika.
Lögreglustjórar víða um land sem Fréttablaðið ræddi við í gær kannast ekki við það verklag sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, viðhafði í samskiptum sínum við Gísla Frey Valdórsson í lekamálinu.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spyr hvort gamlir draugar séu komnir á kreik við sölu Landsbankans á hlut bankans í Borgun.
Nú er svo komið að nokkur sátt ríkir um það innan ferðaþjónustunnar á Íslandi að skapa þurfi sérstakan tekjustofn til þess að fjármagna viðhald og uppbyggingu á og við ferðamannastaði á landinu.
Annarri verkfallslotu lækna er að ljúka án áþreifanlegs árangurs. Læknar lýsa yfir þungum áhyggjum af skjólstæðingum sínum og biðlistum sem lengjast. Uppsagnir eru sífellt oftar nefndar. Hvíslað er um lög á verkfallið.
Persónuvernd hefur sent lögreglunni á Suðurnesjum bréf þar sem óskað er eftir skýringum varðandi sendingu Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur til Gísla Freys.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að læknar eru nú í kjarabaráttu og í fyrsta sinn að nýta verkfallsrétt.
Þörf lögreglunnar fyrir vopn er sögð óbreytt þótt Landhelgisgæslan endursendi hríðskotabyssur til Noregs. Lögreglan biður nú Norðmenn milliliðalaust um að útvega sér vopn. Vopnakaup eru ekki brýnasta verkefnið hjá Landhelgisgæslunni.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri dró fréttastofu Stöðvar 2 dögum saman á ósk um viðtal þar til hún hafnaði því alfarið að veita slíkt viðtal.
Innihald greinargerðar sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum sendi aðstoðarmanni innanríkisráðherra í fyrra ræður hvort lögreglustjórinn hafi mátt senda skjalið segir lektor við Háskóla Íslands.
Lögmaður erlendrar konu í lekamálinu kvartaði í gær undan sendingum lögreglustjórans á Suðurnesjum til aðstoðarmanns innanríkisráðherra. Persónuvernd rannsakar málið nú þegar og kallar eftir upplýsingum.
Í svari innanríkisráðuneytisins til fréttastofu kemur fram að Gísli Freyr Valdórsson mátti ekki óska eftir upplýsingum sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum veitti honum.
Tveir læknar á Landspítalanum birtu uppsagnarbréf sín á Facebook í gærkvöldi.
Nýtt frumvarp um Náttúrupassa verður kynnt í ríkisstjórn á næstu dögum. Innheimta á eitt gjald og Íslendingar og erlendir ferðamenn greiða það sama.
Ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins segir aðstoðarmann ráðherra ekki hafa mátt fá greinargerð sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum afhenti. Aðstoðarmaðurinn leyndi skjalinu sem ekki er skráð hjá ráðuneytinu.
Ekki var hægt að skipa faghópa í haust til að hefja matsvinnu á fimm virkjunarkostum í biðflokki rammaáætlunar. Atvinnuveganefnd vill færa þessa sömu kosti úr bið- í nýtingarflokk án aðkomu verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Formaður efast um lögmæti þeirrar aðgerðar.
Landsbankinn undirritaði í dag samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf. Söluverðið er 2.184 milljónir króna.