Þriggja strokka Volvo vél er 180 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 12. desember 2014 10:02 Brátt mun þriggja strokka vél fá st í Volvo S60.
Þær eru ekki stórar vélarnar sem Volvo þróar nú í bíla sína, en þess öflugri. Volvo framleiðir nú enga vél með stærra sprengirými en 2,0 lítra en hefur náða að kreista út heil 450 hestöfl úr slíkri vél. Nú vinnur Volvo hinsvegar að smíði þriggja strokka vélar sem skilar allt að 180 hestöflum. Því verða einungis þriggja og fjögurra strokka vélar í öllum bílgerðum frá Volvo á næstunni, en þær styðjast reyndar svo til allar við forþjöppur, keflablásara og rafmótora til að auka afl þeirra og í leiðinni minnka eyðsluna. Þetta mikla afl þriggja strokka vélarinnar slær hressilega við aflinu í þriggja strokka vélum sem í boði eru t.d. í bílunum Ford Fiesta, Opel Adam, Audi A1, Mini Cooper, Smart ForTwo og Mitsubishi Mirage, en nær þó langt frá því 362 ógnaraflinu í BMW i8 tvinnbílnum sem einnig fær afl frá rafmótorum. Nýja þriggja strokka vél Volvo mun sjást í bílgerðunum Volvo S-40, V40 wagon, XC40 crossover, sem og í S60, V60 og XC60.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent