Logi Gunnarsson spilaði sinn hundraðasta landsleik þegar íslenska karlalandsliðið vann fjórtán stiga sigur á Lúxemborg í æfingaleik í fyrrakvöld. Logi hafði svo sannarlega tilefni til að brosa út að eyrum eftir leikinn því hann hélt upp á tímamótin sín með sögulegum hætti.
Logi sker sig nefnilega úr á meðal þeirra tólf sem hafa komist í hundrað leikja klúbbinn en enginn þeirra hefur bæði verið stigahæstur og fagnað sigri í hundraðasta landsleiknum sínum.
Logi varð fjórði leikmaðurinn sem nær því að verða stigahæstur í sínum hundraðasta landsleik en því náðu einnig þeir Valur Ingimundarson, Guðmundur Bragason og Falur Harðarson.
Þeir náðu því hins vegar allir í tapleik. Jón Sigurðsson varð fyrsti meðlimur klúbbsins í ársbyrjun 1982 en 23 stigin hans dugðu aðeins til að verða þriðji stigahæstur í 21 stigs sigri á Portúgal í Laugardalshöllinni.
Logi Gunnarsson er í fjórða sæti yfir flest stig í hundraðasta landsleiknum á eftir Vali Ingimundarsyni (24 stig – 14.5 maí 1989), Jóni Sigurðssyni (23 – 6. janúar 1982) og Teiti Örlygssyni (22 – 19. maí 1997) og aðeins Herbert Arnarson hefur sett niður fleiri þrista í slíkum tímamótaleik en Logi skoraði fjórar þriggja stiga körfur í leiknum.
Logi hefur ekki skorað meira í landsleik síðan sumarið 2011 eða í síðustu tuttugu landsleikjum sínum og hafði aðeins skorað samtals 20 stig í síðustu sex leikjum sínum undir stjórn Peters Öqvist.
Logi fann sig hins vegar mjög vel í fyrsta leiknum undir stjórn Craigs Pedersen og vonandi verður framhald á því en Ísland mætir Lúxemborg aftur í æfingaleik í dag.
Stigahæstir í 100. landsleiknum
Valur Ingimundarson - 14.5.1989 í tapi á móti Ungverjalandi (24 stig)
Guðmundur Bragason - 23.5.1995 í tapi á móti Sviss (16 stig)
Falur Harðarson - 1.12.1999 í tapi á móti Slóveníu (16 stig)
Logi Gunnarsson - 31.7.2014 í sigri á móti Lúxemborg (19 stig)
Flest stig í hundraðasta landsleiknum
24 - Valur Ingimundarson
23 - Jón Sigurðsson
22 - Teitur Örlygsson
19 - Logi Gunnarsson
17 - Torfi Magnússon
17 - Herbert Arnarson
16 - Guðmundur Bragason
16 - Falur Harðarson
12 - Guðjón Skúlason
3 - Jón Arnar Ingvarsson
2 - Jón Kr. Gíslason
2 - Friðrik Stefánsson
Flestir þristar í hundraðasta landsleiknum
5 - Herbert Arnarson
4 - Teitur Örlygsson
4 - Falur Harðarson
4 - Logi Gunnarsson
2 - Valur Ingimundarson
2 - Guðjón Skúlason
1 - Jón Arnar Ingvarsson
Í sigurliði í hundraðasta landsleiknum
Jón Sigurðsson - 6. janúar 1982 á móti Portúgal
Torfi Magnússon - 28. apríl 1985 á móti Lúxemborg
Jón Kr. Gíslason - 25. maí 1991 á móti Lúxemborg
Teitur Örlygsson - 19. maí 1997 á móti Noregi
Herbert Arnarson - 31. maí 2001 á móti Möltu
Friðrik Stefánsson - 7. júní 2007 á móti Mónakó
Logi Gunnarsson - 31. júlí 2014 á móti Lúxemborg
Logi hélt upp á 100 leikja tímamótin sín með sögulegum hætti

Tengdar fréttir

Logi stigahæstur í sigri á Lúxemborg
Logi Gunnarsson, skotbakvörðurinn úr Njarðvík lék sinn 100 landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld og var hann stigahæstur leikmanna Íslands með 19 stig i fjórtán stiga sigri á Lúxemborg.

Fimm leikmenn landsliðsins að fylgja í fótspor pabba
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er nú statt út í Lúxemborg þar sem liðið spilar tvo æfingaleiki við heimamenn en þetta er lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir Evrópukeppnina. Ísland vann sannfærandi fjórtán stiga sigur í fyrsta leiknum.

Lúxemborg önnur hundrað stiga þjóðin hans Loga
Logi Gunnarsson lék í gær sinn hundraðasta landsleik þegar íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann sannfærandi 14 stiga sigur á Lúxemborg, 78-64.