
Vissi að Heimir og Lars hefðu trú á mér

Varð hann jafnframt fjórði fljótasti maðurinn til þess að skora mark keppnisleik þegar hann skallaði boltann í netið af stuttu færi á Laugardalsvelli.
Jón Daði fékk óvænt tækifærið í byrjunarliði íslenska liðsins í sínum fyrsta mótsleik en hann hefur leikið þrjá æfingarleiki með liðinu en ekki komist á blað.
„Mér var búið að ganga mjög vel á æfingum og ég vissi að Heimir og Lars hefðu mikla trú á mér og treystu mér. Þeir treystu mér nægilega mikið til þess að gefa mér byrjunarliðssæti og þetta gekk bara mjög vel,“ sagði Jón sem fékk sannkallaða draumabyrjun en hann skoraði fyrsta mark Íslands eftir átján mínútur.
„Þetta létti auðvitað pressunni, þetta var minn fyrsti keppnisleikur fyrir A-landsliðið og það var eðlilega smá stress fyrir leik en um leið og þjóðsöngurinn kom þá fór allt stress. Það gleymist allt um leið og maður kemst af stað.“
Í góðra manna hóp
Með marki sínu komst Jón Daði í hóp fjögurra annarra leikmanna sem hafa skorað í sínum fyrsta keppnisleik fyrir íslenska landsliðið, þeirra Eiðs Smára Guðjohnsen, Tryggva Guðmundssonar, Lárusar Guðmundssonar og Arnar Óskarssonar.
„Það er gaman að heyra það, þetta eru flott nöfn og það er frábært að vera í hóp með jafn góðum leikmönnum. Vonandi nær maður að fylgja því eftir og byggja ofan á þetta,“ sagði Jón Daði en hann er með fjórðu stystu biðina eftir marki í keppnisleik.
„Þegar maður heyrir þetta fyllist maður stolti, ekki bara þessar upplýsingar heldur að hafa spilað nánast heilan mótsleik fyrir Íslands hönd í gær. Fjölskyldan var með mér í gær og það eru allir himinlifandi yfir þessu og vonandi er þetta það sem koma skal,“ sagði Jón Daði sem vonast eftir sæti í A-landsliðshóp Íslands í næstu leikjum en á sama tíma spilar U21 árs landsliðið gríðarlega mikilvægan leik í umspili upp á sæti á Evrópumótinu 2015.
„Það er vonandi að maður hafi sýnt að maður eigi heima í þessum frábæra hóp. Það væri gaman að taka þátt í verkefninu með U21 en maður vill auðvitað komast eins langt og mögulegt er og það stærsta sem maður getur upplifað í þessu eru leikir með A-landsliðinu.“
Tengdar fréttir

Gylfi: Gott að skora fyrsta markið
Gylfi Þór Sigurðsson var að vonum sáttur eftir sigurinn örugga á Tyrkjum í kvöld.

Heimir: Frekar þægilegt, þó það sé fáránlegt að segja það
Landsliðsþjálfarinn var sigurreifur eftir frækna frammistöðu strákanna okkar í fyrsta leik undankeppni EM 2016.

Joey Barton hrósaði íslenska landsliðinu
"Þvílík frammistaða hjá þjóð með færri en 350 þúsund íbúa,“ sagði Joey Barton, leikmaður QPR í kvöld.

Theodór Elmar: "Ég var með stöðuga gæsahúð síðustu fimmtán mínúturnar“
"Þetta kvöld er á toppnum eins og er og verður seint toppað,“

Hannes Þór: Þetta var langþráður sigur
"Við gáfum þeim aldrei séns og keyrðum yfir þá,“ segir Hannes Þór Halldórsson, markvörður Íslands.

Jón Daði: Ólýsanlegt að skora í sínum fyrsta keppnisleik
Jón Daði Böðvarsson spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir Íslands hönd gegn Tyrklandi í kvöld. Selfyssingurinn átti frábæran leik og skoraði fyrsta mark Íslands.

Myndasyrpa frá glæstum sigri Íslands
Það var frábær stemning í Laugardalnum í kvöld þegar íslenska landsliðið rúllaði yfir Tyrki í undankeppni EM 2016.

Gleði á Twitter eftir sigurinn á Tyrkjum
Stuðningsmenn íslenska landsliðsins og strákarnir sjálfir fögnuðu góðum sigri á Twitter eftir leikinn í kvöld. Hér má sjá nokkur þeirra.

Mörkin og umræða um Tyrklandsleikinn
Guðmundur Benediktsson gerði upp leik Íslands og Tyrklands á Stöð 2 Sport í kvöld með þeim Óskari Hrafni Þorvaldssyni og Þorvaldi Örlygssyni.

Ragnar Sig: Hafði aldrei séð Jón Daða spila
„Ég fatta aldrei að láta mig falla,“ segir miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson sem átti frábæran leik í hjarta varnarinnar gegn Tyrkjum.