
Menntaskólinn í Reykjavík er alltaf númer átján í röðinni
Sögu MR geta menn auðveldlega rakið næstum 170 ár aftur í tímann, en skólinn er arftaki skólanna á Bessastöðum og áður í Skálholti. Þá fer sagan að teygja sig upp í nærri þúsund ár. Sagan er fróðleg, en enginn lifir endalaust á fornri frægð. Á hverju ári bætist við afrekaskrá nemenda skólans. Þeir skara fram úr í hverri keppninni á fætur annarri þar sem byggt er á þekkingu, innsæi og frumleika, ár eftir ár. Þegar í háskóla er komið hafa stúdentar frá skólanum upp til hópa reynst vel undirbúnir og þeim farnast betur að jafnaði en nemendum frá öðrum skólum.
Margir ráðamenn þjóðarinnar fyrr og síðar eru stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík. Því hefði mátt búast við því að þeir hefðu viljað búa vel að skólanum sem bjó þá undir lífið. Engum kæmi á óvart að margir þeirra vildu gæta þess að rekstur og húsakostur elstu menntastofnunar þjóðarinnar væru ekki til vansa. Fáir hefðu láð þeim það.
Ekkert bólar á efndum
Þannig er það samt ekki. Síðast var byggt nýtt húsnæði fyrir Menntaskólann í Reykjavík á sjöunda áratug síðustu aldar. Síðan er liðin hálf öld þar sem fátt gerðist annað en að velunnari skólans gaf honum glæsilegt hús að gjöf, sem nokkru þurfti að kosta til þannig að það nýttist skólanum. Annað hefur ekki verið byggt.
Fyrir rúmlega áratug tóku ráðamenn í Reykjavík og menntamálaráðuneytinu saman höndum og skrifuðu undir samkomulag um að byggt skyldi hús sem hýsti kennslustofur, íþrótta- og fyrirlestrasali og félagsaðstöðu fyrir nemendur. Enn þann dag í dag bólar ekkert á efndum.
Auðvitað þarf að forgangsraða í ríkisfjármálum. Auðvitað á að fara vel með peninga almennings. En það á ekki að refsa Menntaskólanum í Reykjavík fyrir útsjónarsemi og hófsemd. Aðrir skólar eru aftur og aftur teknir fram fyrir MR í röðinni þegar kemur að framkvæmdum. Í fyrra samþykkti Alþingi viðbótarfjárveitingu til skólans, sem hann hefur þó ekki notið enn vegna tæknilegra skilyrða sem sett voru við lokafrágang fjárlaga.
Nú er lag að alþingismenn setji Menntaskólann í Reykjavík fremstan í röðina og ákveði að ríkið standi við samkomulagið frá árinu 2003. Á árunum 2017-19 er hægt að ljúka byggingarframkvæmdum við skólann þannig að honum verði loksins búin sú umgjörð sem hann og nemendur hans eiga skilið.
Skoðun

Leiðréttingar á staðhæfingum um mjólkurmarkaðinn og tollflokkun
Erna Bjarnadóttir skrifar

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Ragnheiður Gröndal,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir skrifar

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar