Óheppnin eltir Guðmund - besta vinstri handar skyttan meiddist Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2015 11:15 Kasper Söndergaard varð fyrir samskonar meiðslum á ÓL 2012. Vísir/Getty
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, hefur þegar misst einn leikmann í HM-hópnum og nú á annar í hættu á að missa af HM í handbolta í Katar. Kasper Söndergaard, besta örvhenta skytta Dana, meiddist á vinstri þumalfingri á æfingu í gær og danskir miðlar segja frá því að HM sé í hættu hjá kappanum enda meiðslin á skothendinni. Áður hafði leikstjórnandinn Morten Olsen nefbrotnað á æfingu og þá hefur Bo Spellerberg verið að glíma við meiðsli á hæl þó svo að hann sé byrjaður að æfa á ný. Fyrsta stórmót Guðmundar með danska landsliðið fer því ekki vel af stað en miklar væntingar eru bundnar við danska liðið á heimsmeistaramótinu. Kasper Söndergaard er þó staðráðinn í að spila í gegnum meiðslin sem hann sagði í viðtali við Ekstra Bladet vera samskonar og hann varð fyrir á Ólympíuleikunum í London. Hann spilaði í meira en hálft ár með spelku. Í morgun kom í ljós að Kasper Söndergaard er ekki brotinn sem eru góðar fréttir. Hann ætti því mögulega að geta spilað með spelku á HM.
HM 2015 í Katar Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Dagskráin í dag: Ryder bikarinn, enski boltinn og baráttan í Bestu Sport KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Stórveldaslagur „upp á líf og dauða“ Íslenski boltinn Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira