Peter Wallenberg látinn Atli Ísleifsson skrifar 19. janúar 2015 10:23 Peter Wallenberg á fundi með Wen Jiabao, þáverandi forsætisráðherra Kína, árið 2007. Vísir/AFP
Sænski fjárfestirinn Peter Wallenberg lést á heimili sínu í morgun, 88 ára að aldri. Peter Wallenberg tók sæti í stjórn viðskiptasamsteypu Wallenberg-fjölskyldunnar árið 1969. Hann tók svo við stjórnarformennsku árið 1982 af föður sínum en lét af henni í síðustu viku. Sonur hans, Peter Wallenberg yngri, tók þá við. Wallenberg-samsteypan hefur í sínum höndum mjög stóran hluta hlutafjármarkaðarins í Svíþjóð og er af flestum talin valdamesta fjölskylda landsins. Samsteypan á hlut í flestum af stærstu fyrirtækjum Svíþjóðar, meðal annars Ericson, Electrolux, ABB, SKF og Atlas Copco. Frægasti meðlimur Wallenberg-fjölskyldunnar er líklegast Raoul Wallenberg, sænskur stjórnarerindreki sem starfaði í ungversku höfuðborginni Búdapest á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Milli júlí og desember 1944 bjargaði hann lífi fleiri tugum þúsunda gyðinga með því að hýsa þá og gefa út sérstök vegabréf þeim til handa.
Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Fleiri fréttir Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira