Spánverjar fyrstir til að vinna gestgjafana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2015 17:52 Julen Aguinagalde var öflugur á lokakaflanum. Vísir/AFP
Heimsmeistarar Spánverja eru áfram með fullt á HM í handbolta í Katar eftir þriggja marka sigur á gestgjöfunum frá Katar, 28-25, í toppslag í A-riðli í dag. Spánverjar voru þremur mörkum undir þegar tuttugu mínútur voru eftir en tryggðu sér sigurinn með því að skora þrjú síðustu mörk leiksins og fimm af síðustu sex. Línumaðurinn Julen Aguinagalde skoraði tveimur mörkum meira (4-2) en allt Katarliðið á síðustu sex mínútum leiksins. Spænska liðið hefur átta stig af átta mögulegum en mætir Slóveníu í lokaleiknum þar sem efsta sæti riðilsins er í boði. Spánverjar komust í 3-1 og 5-2 í upphafi leiks en Katarmenn léku mjög vel það sem eftir var hálfleiksins og voru 10-8 yfir í hálfleik eftir að þeir skoruðu fjögur síðustu mörk hálfleiksins. Lið Katar náði í fjórgang þriggja marka forystu í upphafi seinni hálfleiks, síðast 17-14 þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum. Spænska liðið vann hinsvegar síðustu tuttugu mínútur leiksins 14-8 og tryggði sér fjórða sigur sinn í röð á heimsmeistaramótinu. Staðan var 25-25 þegar þrjár mínútur voru eftir þrjú síðustu mörk leiksins voru spænsk. Valero Rivera skoraði sjö mörk fyrir Spán og Víctor Tomás var með sex mörk. Línumaðurinn Julen Aguinagalde skoraði aftur á móti öll fjögur mörk sín á síðustu sex mínútum leiksins.
HM 2015 í Katar Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti Dagskráin í dag: Ryder bikarinn, enski boltinn og baráttan í Bestu Sport KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Stórveldaslagur „upp á líf og dauða“ Íslenski boltinn Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Fleiri fréttir KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Sjá meira