Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins hefur ákveðið að taka ekki þátt í ástralska kappakstrinum.
Alonso lenti í árekstri við varnarvegg á Katalóníubrautinni í annarri æfingalotu. Hann rotaðist við höggið og missti um skamma stund meðvitund.
Kevin Magnussen, varaökumaður liðsins tekur því sæti Alonso í keppninn. Daninn ungi fékk að spreyta sig á æfingum í síðustu viku.
Magnussen sagði þó „ég tel mig ekki fullkomlega tilbúinn fyrir Ástralíu ef til þess kemur,“ en hann náði öðru sæti í keppninni í fyrra. Þá var hann ökumaður liðsins en tapaði sæti sínu til Alonso fyrir komandi tímabil.
Spánverjinn hefur samkvæmt læknisráði valið að taka ekki þátt í Melbourne eftir 11 daga. Læknar liðsins finna ekkert að ökumanninum. Hins vegar mæla þeir sterklega gegn því að hann taki áhættu á að fá aftur höguðhögg í nokkurn tíma.
Alonso hefur ákveðið að fara að læknisráði og koma þar með í veg fyrir möguleika á endurteknu höfuðhöggi sem gæti leitt til alvarlegrar heilabólgu. Hætta er á slíku í nokkrar vikur eftir upprunalega höggið.
Alonso ekki með í Ástralíu

Tengdar fréttir

Árekstur Alonso vindinum að kenna
Fernando Alonso lenti í harkalegu samstuði við varnarvegg á loka degi annarrar æfingalotu fyrir komandi tímabil.

Mercedes áfram fljótastir
Heimsmeistarinn Lewis Hamilton hélt Mercedes liðinu á toppnum í loka æfingalotunni fyrir komandi tímabil.

Massa fljótastur og McLaren í vandræðum
Felipe Massa á Williams varð fljótasti maður dagsins. Þriðja og síðasta æfingalotan fyrir Formúlu 1 tímabilið hófst á Katalóníubrautinni í dag.

Grosjean fljótastur á Lotus
Romain Grosjean á Lotus varð fljótastur á lokadegi æfingalotunnar. Hann var á ofur mjúkum dekkjum. Pastor Maldonado varð fljótastur á Lotus á degi þrjú.

Mercedes sýnir mátt sinn
Nico Rosberg á Mercedes sýndi hvað býr í bílnum á öðrum degi síðustu æfingalotunnar. Hann setti gríðarlega góðan tíma á Katalóníubrautinni.