Þeim stuðningsmönnum sem létu höggin dynja á bílum leikmanna Real Madrid eftir tap liðsins gegn Barcelona um síðustu helgi hefur verið refsað.
Stuðningsmennirnir biðu leikmannanna, þeirra á meðal Jese og Gareth Bale, er þeir óku í burtu frá æfingasvæði félagsins eftir að liðið sneri aftur frá Barcelona á sunnudagskvöldið.
Þrír stuðningsmenn hafa verið sektaðir af sérstakri nefnd spænsku ríkisstjórnarinnar sem vinnur að því að útrýma ofbeldi úr íþróttum. Þeim hefur einnig verið bannað að sækja íþróttaleiki í sex mánuði.
Einn þremenninganna er meðlimur í Real Madrid og var strax settur í bann þar til að afstaða verði tekin til þess hvort eigi að reka manninn úr félaginu.
Sektaðir fyrir að ráðast á bíla leikmanna

Tengdar fréttir

Brjálaðir stuðningsmenn biðu Madrídinga
Létu höggin dynja á bílum leikmanna Real Madrid við heimkomuna í gærkvöldi.

Í bann fyrir að veitast að leikmönnum Real Madrid
Einn þeirra sem lét höggin dynja á bíl leikmanna Real Madrid eftir El Clasico var meðlimur í félaginu.