Hægt var að fylgjast með sólmyrkvanum í beinni útsendingu á Vísi. Í spilaranum hér fyrir ofan er hægt að sjá myrkvann í heild sinni á tíu mínútum.
Vísir tók saman nokkra fróðleiksmola um myrkvann en Stjörnufræðivefurinn hefur tekið saman mikið af upplýsingum um hann.
- Sólmyrkvi verður þegar tunglið gengur milli sólar og Jarðar og myrkvar þannig sólina að hluta eða í heild séð frá Jörðinni.
- Sólmyrkvinn mun standa yfir í um tvo klukkutíma. Hann hefst í Reykjavík klukkan 8:38 og nær hámarki sínu klukkan 9:37. Annars staðar á landinu getur munað einni til tveimur mínútum til eða frá.
- Sólmyrkvinn er almyrkvi sem stendur lengst í 2 mínútur og 47 sekúndur. Almyrkvi sést í Færeyjum og á Svalbarða en ferill hans liggur um 70 kílómetra austur af suðausturhluta Íslands.
- Á Íslandi sést deildarmyrkvi. Í Reykjavík hylur tunglið 97,5% sólar en 99,4% á Austurlandi. Um er að ræða mesta myrkva sem sést hefur hér á landi frá almyrkva sem varð 30. júní 1954.
- Góðar horfur eru á að vel muni sjást til sólmyrkvans á suðaustur,- suðvestur- og vesturhluta landsins en að skýjahula muni birgja sýn frá Húnavatnssýslu og austur til Austfjarða. Reyndar er skýjabakki að nálgast suðvesturströndina en líklega mun hann ekki spilla sýn, að mati veðurfræðings á vakt. Hér má fylgjast með skýjahuluspá Veðurstofunnar.
- Augnlæknar vara fólk sterklega við því að horfa til sólu án sérstakra sólmyrkvagleraugna en öll grunnskólabörn landsins fengu slík gleraugu að gjöf frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness.
- Eigi fólk ekki sólmyrkvagleraugu, sem eru löngu uppseld á landinu, má horfa á myrkvann í gegnum rafsuðugler eða filmur.
- Þá er ekki ráðlagt að beina myndavél eða síma beint í sólina til að taka mynd án þess að nota sólarsíur eða rafsuðugler, þar sem það getur verið slæmt fyrir augun og skemmt linsuna í vélinni eða símanum.
- Sólin er lágt á lofti nú í morgunsárið og því er vert að gæta að því að byggingar og fjöll skyggi ekki á sólina vilji fólk fylgjast með myrkvanum.
- Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verður fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands og mun fylgjast með sólmyrkvanum þaðan með sjónaukum sínum.
Kringvarp Foroya sýndi frá Færeyjum.
Stjörnuskoðunarfélagið Slooh sýndi frá Skotlandi.
NRK sýndi frá Svalbarða.
Háskólinn í Nottingham sýndi frá þaki skólans.