Handbolti

Rúnar næstmarkahæstur í jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rúnar Kára í landsleik.
Rúnar Kára í landsleik. vísir/vilhelm
Rúnar Kárason var næstmarakhæstur hjá Hannover-Burgdorf gegn VFL Gummersbach í jafntefli liðanna fyrr í dag, 26-26. Hinir tveir Íslendingarnir komust ekki á blað.

Liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleik og liðin voru aldrei langt frá hvoru öðru. Í hálfleik var staðan svo 12-11, Gummersbach í vil.

Mait Patrail jafnaði metinn fyrir Gummersbach í 26-26 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Hvorugu liðinu tókst að skora og lokatölur því 26-26.

Sven Christophersen skoraði sjö mörk fyrir Hannover-Burgdorf, en Rúnar Kárason skoraði sex þar af fjögur úr vítum.

Ólafur Guðmundsson, Hannover og Gunnar Steinn Jónsson, Gummersbach, komust ekki á blað.

Hannover er í tíunda sætinu, en Gummersbach sæti oftar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×