Niðurskurðarhnífur skar Dettifossveg Kristján Már Unnarsson skrifar 2. apríl 2015 09:00 Frá lagningu fyrsta áfanga nýs Dettifossvegar árið 2009. Til stóð að bjóða út lokaáfangann á þessu ári. Stöð 2.
Bundið slitlag sem bætist við þjóðvegakerfið á þessu ári verður að öllum líkindum það minnsta í nærri fjörutíu ár, eða innan við tuttugu kílómetrar. Þetta má sjá af gögnum sem Vegagerðin hefur kynnt um áformaðar framkvæmdir. Fjallað var um málið i fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Tíu kílómetrar í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum var lengsti kaflinn af þeim 45 kílómetrum sem slitlagið lengdist um í fyrra en það var minnsta viðbót í 35 ár. Í ár eru horfur á að það verði enn minna sem bætist við og að fara þurfi aftur til ársins 1977 til að finna dæmi um svo litla slitlagslengingu. Það ár bættust við 12 kílómetrar.Súlurit Vegagerðarinnar sýnir hve margir kílómetrar bundins slitlags hafa bæst við á hverju ári frá 1970.Niðurskurður ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans á Alþingi á samgönguáætlun veldur því að nokkur verkefni, sem áttu að hefjast á þessu ári, lentu undir hnífnum. Eftir afgreiðslu fjárlaga vantaði fjóra milljarða króna inn til að unnt væri að standa við áformin, að því er fram kom í kynningu Rögnvaldar Gunnarssonar, forstöðumanns hjá Vegagerðinni, á Útboðsþingi nýlega. Verkefnin sem voru látin víkja í ár eru Reykjavegur í Biskupstungum, Bjarnarfjarðarháls á Ströndum norðan Steingrímsfjarðar, brúarsmíði á Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði, Dettifossvegur að vestanverðu milli Hljóðakletta og Dettifoss, og síðasti kaflinn í botni Berufjarðar. Það er reyndar verið að kanna hvort unnt sé að byrja á Bjarnarfjarðarhálsi, samkvæmt upplýsingum Péturs Matthíassonar hjá Vegagerðinni. Stærstu nýju verkin sem fá framgang á þessu ári eru annarsvegar framlenging Arnarnesvegar í austurbyggðum Kópavogs og hins vegar jarðgöng og vegagerð til að tengja Húsavíkurhöfn við iðnaðarsvæðið á Bakka. Þótt nýtt slitlag verði ekki mikið eru þetta þó kaflar sem munar um á hverjum stað, eins og fjórir kílómetrar á afleggjarann að Sólheimajökli, þrír kílómetrar á Landeyjaveg meðfram suðurbakka Þverár, á Búrfellsveg í Grímsnesi koma 2,4 kílómetrar og að bílastæði við Reykjanesvita einnig 2,4 kílómetrar. Í Hvítársíðu í Borgarfirði um Bjarnastaði koma þrír kílómetrar, fimm kílómetrar í átt að Örlygshöfn í sunnanverðum Patreksfirði, í Miðfirði í Húnaþingi frá hringvegi að Króksstöðum 3,8 kílómetrar, fremst í Eyjafirði á Hólaveg koma þrír kílómetrar, og svo einn kílómetri að bænum Dilksnesi í Hornafirði. Sum þessara verka klárast ekki fyrr en árið 2016.
Alþingi Tengdar fréttir Vegur um Teigsskóg varla fyrr en árið 2019 Vegagerðin hyggst ekki óska eftir sérlögum frá Alþingi vegna vegagerðar um Teigsskóg en fer í staðinn fram á að eldra umhverfismat verði endurskoðað. 14. október 2014 13:45 Hálfur Dettifossvegur verri en enginn Ferðaþjónustuaðilar á norðausturhorni landsins óttast hrun, þegar bara hálfur Dettifossvegur verður opnaður meðfram Jökulsárgljúfrum næsta sumar, og segja að ferðamennirnir muni sleppa Ásbyrgi og byggðunum við norðurströndina. 25. október 2009 11:24 Hvorki tvöföldun við Straumsvík né í Ölfusi á samgönguáætlun Dýrafjarðargöng verða næsta stórvirki í vegagerð, samkvæmt samgönguáætlun til ársins 2016, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt, og þá lítur út fyrir að loksins verði hægt að aka hring í kringum landið á bundnu slitlagi. 27. mars 2014 19:15 Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent Val Kilmer er látinn Erlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira
Vegur um Teigsskóg varla fyrr en árið 2019 Vegagerðin hyggst ekki óska eftir sérlögum frá Alþingi vegna vegagerðar um Teigsskóg en fer í staðinn fram á að eldra umhverfismat verði endurskoðað. 14. október 2014 13:45
Hálfur Dettifossvegur verri en enginn Ferðaþjónustuaðilar á norðausturhorni landsins óttast hrun, þegar bara hálfur Dettifossvegur verður opnaður meðfram Jökulsárgljúfrum næsta sumar, og segja að ferðamennirnir muni sleppa Ásbyrgi og byggðunum við norðurströndina. 25. október 2009 11:24
Hvorki tvöföldun við Straumsvík né í Ölfusi á samgönguáætlun Dýrafjarðargöng verða næsta stórvirki í vegagerð, samkvæmt samgönguáætlun til ársins 2016, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt, og þá lítur út fyrir að loksins verði hægt að aka hring í kringum landið á bundnu slitlagi. 27. mars 2014 19:15