Handbolti

Kiel tapaði í Ungverjalandi

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. vísir/getty
Rimma Kiel og Pick Szeged í Meistaradeildinni er galopin eftir sigur ungverska liðsins í dag.

Szeged fagnaði tveggja marka sigri, 31-29, í Ungverjalandi í dag en þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum keppninnar.

Szeged lengstum skrefinu á undan Kiel komst yfir er tæpar tíu mínútur voru eftir. Szeged kom til baka og náði að innsigla sigur á sterkum heimavelli sínum.

Steffen Weinhold var markahæstur í liði Kiel með fimm mörk en Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk. Það var lítil markvarsla hjá Kiel í leiknum og hafði það eðlilega mikil áhrif.

Tveggja marka mismunur ætti þó ekki að vera óyfirstíganleg hindrun fyrir Kiel á heimavelli sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×