Handbolti

Szilagyi bjargaði stigi fyrir Bergrischer

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bergrischer gerði jafntefli við HSG Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 28-28. Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergrischer og Björgvin Páll Gústavsson stóð vaktina í markinu.

Staðan í hálfleik var 14-16 Wetzlar í vil. Heimamenn í Bergrischer sýndu klærnar í síðari hálfleik og Viktor Szilagyi bjargaði stigi fyrir Bergrischer. Hann skoraði í þann mund sem tíminn rann út.

Bergrischer er í tólfta sæti þýsku deildarinnar, en Wetzlar er í því níunda.

Í sömu deild töpuðu TSV Hannover-Burgdorf fyrir FRISCH AUF! Göppingen, 25-22. Göppingen var 12-11 yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forystu.

Ólafur Guðmundsson og Rúnar Kárason gerðu sitt hvor tvö mörkin fyrir Hannover sem situr í ellefta sætinu. FRISCH AUF! er í fimmta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×