Handbolti

Naumur sigur hjá lærisveinum Arons

Aron líflegur á hliðarlínunni.
Aron líflegur á hliðarlínunni. vísir/daníel
Lið Arons Kristjánssonar, Kolding, marði sigur á Århus en lið Vignis Svavarssonar fékk skell í kvöld.

Kolding vann 23-22 gegn Århus og mátti litlu muna að Århus hefði jafnað leikinn.

Vignir skoraði fjögur mörk fyrir Midtjylland sem tapaði 32-22 gegn Bjerringbro-Silkeborg.

Kolding er á toppi riðils 1 í úrslitakeppninni en Midtjylland er í neðsta sæti í riðli 2. Fjögur lið eru í hvorum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×