
BHM lítur leyfisveitingu sýslumanns alvarlegum augum

Í fréttatilkynningu frá BHM segir að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi borist umsókn frá Kópavogsbæ um afgreiðslu tveggja tækifærisleyfa hinn 29. apríl síðastliðinn. „Annars vegar var um að ræða tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi laugardaginn 9. maí í tilefni af árshátíð starfsmanna Kópavogsbæjar en hins vegar tækifærisleyfi vegna stórafmælis Kópavogs hinn 10. maí næstkomandi.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sendir svokallaðri undanþágunefnd sem skipuð er skv. 21. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna beiðni um undanþágu frá verkfalli meðal lögfræðinga hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna beggja umsókna Kópavogsbæjar. Í 20. gr. laganna er kveðið á um að sé verkfall hafið er heimilt að kalla starfsmenn, sem eru í verkfalli, tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi. Það er því hlutverk nefndarinnar að meta hvort um sé að ræða neyð í skilningi laganna sem þurfi að afstýra í tilgreindu tilviki.
Þann 4. maí sl. barst sýslumanni niðurstaða frá undanþágunefndinni þar sem honum var tilkynnt um að beiðnin hafi verið tekin til efnislegrar meðferðar. Niðurstaða nefndarinnar var sú að hafna beiðninni og var nefndin einróma í niðurstöðu sinni. Í þessu samhengi má benda á að í nefndinni sitja fulltrúar Stéttarfélags lögfræðinga og ríkisins og eru ákvarðanir nefndarinnar endalegar sbr. 21. gr. laga nr. 94/1986.
Þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu gaf sýslumaður sjálfur út leyfisbréf fyrir báða framangreinda viðburði daginn eftir að honum var birt niðurstaða undanþágunefndarinnar. Í þessu samhengi er jafnframt bent á að í yfirlýsingu frá embætti sem birt er á heimasíðu sýslumannsembættanna (https://www.syslumenn.is/stodflokkar/forsidugreinar/tilkynning-vegna-verkfalla-hja-syslumanninum-a-hofudborgarsvaedinu) kemur fram að tekið sé við umsóknum um gisti- og veitingaleyfi en hvorki séu ný leyfi gefin út né gildandi leyfi endurnýjuð.
Bandalag háskólamanna telur að sýslumaður hafi framkvæmt verkfallsbrot með því að veita framangreind leyfi þrátt fyrir endanlegan úrskurð undanþágunefndar og fyrirliggjandi framkvæmd og lítur málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir

Verður í lagi næstu 7 til 10 daga
Verkfallsaðgerðir koma misjafnlega niður á fólki, en bitna bæði á þeim sem eru í verkfalli, viðsemjendum þeirra og svo þeim sem ekki geta annað gert en fylgst með framvindunni.

Verkfallsaðgerðir sem eru í gangi
Í dag og á morgun stendur yfir allsherjarvinnustöðvun aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins.

Kjúklingurinn að klárast á KFC: Lokunin á Selfossi í raun jákvæð fyrir fyrirtækið
„Núna er þetta bara komið upp í topp, það er allt að verða búið,“ segir Kristín Helgadóttir, framkvæmdarstjóri KFC.

Tilfinninga-Tómas tekur kjúklingaskort á KFC afar nærri sér
"Mér finnst þetta mjög leiðinlegt.“

Starfsemi víða lömuð á landsbyggðinni
Ræstingar liggja m.a. niðri og því ekki hægt að opna leikskóla á landsbyggðinni á föstudag. Dominos lokar á landsbyggðinni.

Sveitarfélögin fá ekki greitt af staðgreiðslu frá ríkissjóði
Innheimta ríkissjóðs í lamasessi vegna verkfalls BHM. Sveitarfélögin fá ekki sinn hlut af staðgreiðslunni.

Áhrif verkfalla á allt atvinnulífið stigmagnast
Á annað þúsund fyrirtækja finna verulega fyrir verkfalli Starfsgreinasambandsins. Eigandi KFC segir kröfuna um 300 þúsund króna lágmarkslaun eðlilega.