ÍA og Víkingur skildu jöfn, 1-1, á Norðurálsvellinum í 3. umferð Pepsi-deildarinnar í gær.
Í uppbótartíma var mark dæmt af Víkingum sem Ólafur Þórðarson, annar þjálfara liðsins, var ekki sáttur með.
„Frá bekknum virkaði þetta brot sem hann dæmir á okkur inni í teignum þegar markmaðurinn er kominn út fyrir vítapunktinn hlægilegt,“ sagði Ólafur í viðtali við Stefán Árna Pálsson í Pepsi-mörkunum í gær.
„Það er bara verið að dæma til öryggis til að þurfa ekki að hlusta á einhverja gagnrýni. Hann fær hana bara hérna í staðinn,“ sagði Ólafur sem var langt frá því að vera sáttur dómara leiksins, Guðmund Ársæl Guðmundsson.
Á upptöku virðist Guðmundur þó hafa rétt fyrir sér en Andri Rúnar Bjarnason, framherji Víkings, keyrir inn í Árna Snæ Ólafsson, markmann Skagamanna, áður en Igor Taskovic setur boltann í markið.
Atvikið og viðtalið við Ólaf má sjá í spilaranum hér að ofan.
Hlægilegur dómur? | Sjáðu markið sem var dæmt af Víkingi
Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Víkingur 1-1 | Jafnt upp á Skaga
Skagamenn og Víkingar gerði 1-1 jafntefli upp á Skaga í 3. umferð Pepsi-deildar karla. Haukur Baldvinsson gerði eina mark Víkings í leiknum en Garðar Gunnlaugsson gerði mark ÍA.

Uppbótartíminn: Línuverðir í ruglinu - Myndbönd
Þriðja umferð Pepsi-deildar karla gerð upp í máli og myndum.