Glamour

Ferskir straumar frá Dior Cruise

Falleg Cruise lína frá Dior.
Falleg Cruise lína frá Dior. Glamour/Getty
Stóru tískuhúsin eru þessa dagana á fullu að sýna millilínur sínar, eða þeir fatalínur sem brúa bilið milli sumar og veturs. 

Dior sýndi "cruise" línu eins og hún kallast, á dögunum. Sýningin fór fram í höllinni Les Palace Bubbles, sem er í eigum fatahönnuðarins Pierre Cardin, er staðsett á milli Cannes og Mónakó í Suður-Frakklandi. En staðsetningin passaði fullkomlega við fatnaðinn sem sýndur var á pöllunum í þetta sinn. 

Bjartir litir, skemmtileg samsetning ólíkra efna og óvenjuleg litasamsetning einkenndi línuna sem sló í gegn hjá tískuspekingunum enda flest í línunni mjög klæðilegt. Skórnir voru líka áhugaverðir, támjótt og stuttur pinnahæll. 

Glamour valdi sitt uppáhalds úr línunni. 





Skemmtilegur kjóll.
Fallegt snið og litasamsetning.
Áberandi mitti - fallegar buxur við einfaldan topp.
Köflóttur toppur í fallegu sniði.
Stuttur samfestingur.
Netatoppur og támjóir skór.
Fallegir fylgihlutir frá Dior.
Fylgstu með Glamour á Facebook hér og á Instagram hér. 



×