Vísir hefur greint frá því að upplýsingarnar sem Malín Brand og Hlín Einarsdóttir ætluðu að gera opinberar ef Sigmundur Davíð greiddi þeim ekki milljónir króna snérust að meintum fjárhagslegum tengslum ráðherrans við Björn Inga.
Á Facebook segist Björn Ingi sleginn yfir fregnum dagsins. „ Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé tillit til þess að hér er mannlegur harmleikur á ferðinni og að aðgát skuli höfð í nærveru sálar,“ segir hann.

Hótanir systranna Hlínar og Malínar Einarsdætra um að ljóstra upp um fjárhagsleg tengsl Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við Björn Inga Hrafnsson, skráðs eiganda DV, Pressunnar, Eyjunnar og fleiri miðla, beina sjónum að stöðu valdhafa gagnvart fjölmiðlum.
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Kú mjólkurbú, var stjórnarformaður DV, allt þar til í maí 2013 þegar hann sagði sig frá starfinu. Hann hefur upplýst að aðilar tengdir Framsóknarflokknum hafi ítrekað fundað með sér vegna hugsanlegrar aðkomu flokksins að DV, og þá eignarhaldi þar.

Ólafur lýsir því svo að aðilar tengdir Framsóknarflokknum hafi ítrekað haft samband við sig og óskað eftir fundum um málefni DV; hvort það væri einhver möguleiki á aðkomu þeirra þá með því að kaupa hlutafé og/eða ná meirihluta í félaginu.
„Ætli ég hafi ekki farið til fundar við Hrólf þrisvar eða fjórum sinnum vegna þessa. Það er bara þannig að það var áhugi og markmið þeirra, enda hefur það komið á daginn að Björn Ingi keypti blaðið og þetta var bara spurning um útfærslu. Ég er ekkert mjög hrifinn af þessari pólitísku aðkomu að fjölmiðlum og vil að þeir séu óháðir. En, Framsóknarflokkurinn ætlaði sér þetta, hvort það var hann beint eða aðilar honum tengdir, hvernig átti að fóðra þessu. Markmiðið var klárt að það átti að koma rödd Framsóknarflokksins að í fjölmiðlum með afgerandi hætti.“