Glamour

Kvenréttindi, velgengni og jafnréttisbaráttan

Ritstjórn skrifar
Kristín, Þórey og Áslaug Arna eru meðal viðmælenda Eddu í Íslandi í dag í kvöld.
Kristín, Þórey og Áslaug Arna eru meðal viðmælenda Eddu í Íslandi í dag í kvöld.
Í dag eru 100 ár liðin síðan konur fengu kosningarrétt á Íslandi og af því tilefni tóku Ísland í dag og Glamour saman höndum og ræddu við konur í samfélaginu um kvenréttindadaginn, velgengni, hvort kyn skipti máli og um jafnréttisbaráttuna. Innslagið verður sýnt í þætti kvöldsins en Edda Sif Pálsdóttir tók viðtölin. .

Fjölbreyttar og misjafnar skoðanir fara á loft frá viðmælendum á borð við Kristínu Eysteinsdóttur, Borgarleikhússtjóra, Yrsu Sigurðardóttur, verkfræðingi og rithöfundi, Þóreyju Vilhjálmsdóttur, formaður Ferðamálaráðs og Landssambandi sjálfstæðiskvenna, Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóri Tulipop, Þórdísi Kjartansdóttur, lýtalækni og Lilju Dóru Halldórsdóttur, forstjóra Lýsingar ásamt fleirum. 

Ekki missa af Íslandi í dag í kvöld klukkan 18.55. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr tökunum.


Kristín Eysteinsdóttir, Borgarleikhússtjóri.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, laganemi er meðal viðmælenda.


×