Stjórn vinnudeilusjóðs Kennarasambands Íslands samþykkti í gær að styðja við Bandalag háskólamanna í yfirstandandi kjaradeilu þess við ríkið. Stuðningurinn felst í fimmtán milljón króna styrk sem fulltrúar KÍ afhentu BHM í gær.
Í stuðningsyfirlýsingu KÍ segir að sambandið taki undir kröfu BHM um að menntun sé metin betur til launa. „KÍ mótmælir þeim seinagangi og skilningsleysi sem ríkið hefur sýnt af sér í samningaviðræðum við BHM undanfarna mánuði. KÍ mótmælir einnig því ofbeldi sem felst í því að Alþingi setji lög á lögmætt verkfall BHM. Með því er verið að taka samningsrétt af launafólki,“ segir í yfirlýsingunni.
Kennarasambandið styrkir BHM um 15 milljónir
sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
