Jón Arnór og félagar tryggðu sér oddaleik á móti Barcelona | Næststigahæstur í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2015 21:03 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Unicaja Malaga fá hreinan úrslitaleik á móti Barcelona um sæti í lokaúrslitunum á Spáni eftir ellefu stiga heimasigur á Barca, 77-66, í kvöld í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum spænsku úrslitakeppninnar í körfubolta. Barcelona vann fyrstu tvo leikina í einvígi liðanna en þeir fóru báðir fram í Barcelona. Síðustu tveir leikir hafa hinsvegar farið fram á heimavelli Unicaja Malaga og Jón Arnór og félagar hafa unnið þá báða. Real Madrid er komið í lokaúrslitin eftir 3-1 sigur í hinu undanúrslitaeinvíginu. Jón Arnór Stefánsson skoraði níu stig á rúmum ellefu mínútum í kvöld en hann hitti úr 3 af 5 skotum sínum í leiknum. Þetta var sameinað átak hjá Unicaja Malaga í leiknum því aðeins einn leikmaður skoraði meira en íslenski landsliðsmaðurinn í kvöld. Stigahæsti leikmaður Unicaja Malaga var Jayson Granger með 11 stig. Jón Arnór skorðai níu stig eins og þeir Ryan Toolson og fyrirliðinn Fran Vázquez. Unicaja Malaga lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik sem liðið vann 41-24. Unicaja vann fyrsta leikhlutann 20-14 og annan leikhlutann 21-10. Unicaja Malaga hélt velli í seinni hálfleiknum og fylgdi þar með eftir frábærum sigri liðsins í leik þrjú. Það mun þó reyna á liðið á útivelli í oddaleiknum þar sem liðið tapaði fyrstu tveimur leikjunum með að meðaltali 26 stiga mun.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira