„Það er mikil reiði hjá almennum Grikkjum, í garð hinna ríkjanna á evrusvæðinu hér í Aþenu miðað við þá Grikki sem ég hef rætt við,“ segir Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður 365 miðla. Þorbjörn er mættur til Aþenu þaðan sem hann mun flytja fréttir næstu daga.
Þorbjörn segir mjög skiptar skoðanir meðal Grikkja hvort þjóðin eigi að vera áfram í myntsamstarfinu eða að kveðja evruna og taka upp nýja Drökmu.
„Grikkir vita að með því að hætta í myntsamstarfinu tækju líklega við miklir erfiðleikar til skamms tíma en gæti um leið verið lausn á kreppunni til lengri tíma litið,“ segir Þorbjörn.
Grikkir hafa til föstudagsmorguns til að leggja fram nýjar tillögur í viðræðum við leiðtoga Evrópusambandsríkja. Þorbjörn segir mikla spennu í loftinu yfir því hvernig tillögurnar muni líta út. Á sunnudag er svo talað um dómsdag þegar leiðtogar Evrópusambandsríkjanna funda í Brussel.
Fjöldi heimilislausra áberandi
Þorbjörn mætti til Aþenu snemma í morgun. Hann segir sláandi að sjá með eigin augum hvernig niðurskurður síðustu ára hafi bitnað á grísku höfuðborginni.
„Stærsta verslunargatan sem iðaði af lífi fyrir bankahrunið er hvorki svipur né sjón,“ segir fréttamaðurinn. Þriðjungi verslana hafi verið lokað og alþjóðlegum verslunum fækkað til muna þótt enn megi finna H&M. Þá hafi verið skorið mikið niður í félagslegum úrræðum og mikill eiturlyfjavandi sé við lýði í kjölfar kreppu.
„Það er óvenjulega sýnilegt hve margt heimilislaust fólk er í Aþenu og við hve slæmt ástand fólk býr,“ segir Þorbjörn. Ástandið sé nokkuð sláandi þótt vissulega sé það við lýði í flestum stórborgum heimsins.
Þorbjörn verður í beinni útsendingu frá Aþenu í hádegisfréttatíma Bylgjunnar klukkan 12 í dag sem og næstu daga. Þá verður hann með fréttir og innslög í kvöldfréttatímum Stöðvar 2.
Vísir mættur til Grikklands: „Óvenjulega sýnilegt hve margt heimilislaust fólk er í Aþenu“

Tengdar fréttir

Juncker vill tillögur á föstudagsmorgun
Forsætisráðherrar ríkja Evrusvæðisins funduðu um neyðaraðstoð í gær. Annar fundur verður á sunnudag. Lokafrestur Grikkja til að koma með ítarlegar tillögur er á föstudag. Nýr fjármálaráðherra Grikkja mætti tómhentur á fund í Brussel.

Lítill tími til stefnu fyrir Grikki
Vera Grikkja í evrusamstarfinu og jafnvel Evrópusambandinu er í húfi.

Vill gera allt til að Grikkland verði áfram hluti af evrusvæðinu
Fjármálaráðherra Frakklands segir það of áhættusamt ef Grikkir yfirgefa evrusamstarfið.