BMW 2 tvíorkubíll Finnur Thorlacius skrifar 3. júlí 2015 09:11 BMW 2 Active Tourer.
Hinn tiltölulega nýi BMW 2 Active Tourer verður brátt í boði sem tvíorkubíll og fær rafmótora til aðstoðar brunavél sinni. BMW heldur nú svokallaða „Innovation days“ og kynnir þar ýmsar nýjungar sínar, meðal annars þennan bíl. BMW 2 verður ekki eini tvíorkubíll fyrirtækisins því von er á BMW X5 xDrive40e PHEV, en þar fer hinn fullvaxni jeppi BMW með tvíorkudrifrás. Sá bíll mun koma fyrr á markað og BMW2 erfir einmitt tvíorkubúnaðinn frá þeim bíl. Nýi BMW 2 bíllinn fær 1,5 lítra og þriggja strokka vél með forþjöppu sem er 134 hestöfl. Að auki er bíllinn með 20 hestafla rafmótor að framan og 87 hestafla rafmótor að aftan. Öll þessi drifrás er tengd við „Dynamic Stability“ kerfi sem sér um að dreifa aflinu á rétt hjól eftir aðstæðum. Drifrásin virkar á þann hátt að hún leitast við að nota eingöngu rafmagn allt að 80 km hraða en sé farið hraðar en það bætist brunavélin við. Þá verður hægt að stilla drifrásina þannig að hann eingöngu eyðir rafmagni og dugar það til um 40 km aksturs. Heildarafl drifrásarinnar er nokkuð mikið og því er bíllinn aðeins 6,4 sekúndur að ná 100 km hraða. Uppgefin eyðsla bílsins er aðeins 2 lítrar á hverja hundrað kílómetra. Rafhlöður bílsins verða undir aftursætunum. Endanlegt verð bílsins hefur ekki verið gefið upp en BMW segir að kaupendur þurfi ekki að greiða mikið meira fyrir þessa tvíorkuútgáfu bílsins umfram hefbundna gerð hans.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent