Þróttur skoraði sitt fyrsta mark í Pepsi-deild kvenna í gær þegar liðið sótti Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar heim.
Fyrir leikinn í gær hafði Þróttur leikið sex leiki án þess að skora og loks þegar stíflan brast á 33. mínútu höfðu Þróttarar beðið í 573 mínútur eftir fyrsta deildarmarkinu, eða næstum því 10 klukkutíma.
Tæknilega séð eru Þróttarar ekki enn búnir að skora í deildinni en mark liðsins í gær var skráð sem sjálfsmark. En burtséð frá því dugði markið skammt því Stjarnan vann leikinn 5-1.
Þrátt fyrir markaleysið er Þróttur, ótrúlegt en satt, ekki á botni deildarinnar. Liðið hefur fengið tvö stig í sumar, einu meira en Afturelding sem vermir botnsætið. Þróttur á auk þess leik inni á Mosfellinga og getur með sigri í þeim leik komið sér í eins stigs fjarlægð frá öruggu sæti.
Lið Aftureldingar hefur verið álíka seinheppið fyrir framan mark andstæðinganna en liðið hefur aðeins gert þrjú mörk í átta leikjum. Mosfellingar þurftu þó „aðeins“ að bíða í 94 mínútur eftir sínu fyrsta deildarmarki en það kom í öðrum leik liðsins gegn Breiðabliki.
KR, sem er í 8. sæti, beið næstlengst eftir marki, eða í 250 mínútur. Það var Margrét María Hólmarsdóttir sem skoraði fyrsta mark liðsins í þriðja leik þess í deildinni gegn Breiðabliki.
Hér fyrir neðan má sjá hversu lengi liðin þurftu að bíða eftir sínu fyrsta marki í Pepsi-deildinni í sumar:
Breiðablik - 18 mínútur
Stjarnan - 62 mínútur
Selfoss - 131 mínútur
ÍBV - 66 mínútur
Valur - 16 mínútur
Þór/KA - 50 mínútur
Fylkir - 12 mínútur
KR - 250 mínútur
Þróttur - 573 mínútur
Afturelding - 94 mínútur
Tæplega 10 klukkustunda bið Þróttar eftir marki lauk í gær

Tengdar fréttir

Stjörnukonur aftur upp í annað sætið | Myndir
Stjarnan minnkaði forskot Breiðabliks í fjögur stig á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar liðið vann fjögurra marka sigur á Þrótti í kvöld, 5-1, þegar liðin mættust á Samsung-vellinum í Garðabænum í lokaleik áttundu umferðar.