Ólsarar upp í "Pepsi-deildar" sæti eftir sigur á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2015 09:38
Ólafsvíkur Víkingar eru komnir upp í annað sæti 1. deildar karla í fótbolta eftir 2-0 útisigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld. HK vann á sama tíma 1-0 sigur á Gróttu.Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir ofan. Spánverjinn William Dominguez da Silva lagði upp fyrra markið í fyrri hálfleik og skoraði það síðara sjálfur snemma í seinni hálfleiknum. Ólsarar náðu þar með tveggja stiga forskoti á Fjarðabyggð og eru aðeins einu stigi á eftir Þrótti. Bæði Fjarðabyggð og Þróttur eiga leik inni um helgina. Víkingar misstu annað sætið til Fjarðabyggðar eftir 1-0 tap í innbyrðisleik liðanna á dögunum en komust nú aftur á sigurbraut og hafa nú unnið sex af síðustu átta leikjum sínum í 1. deildinni. Haukarnir gátu unnið fimmta heimaleik sinn í röð í kvöld en náðu sér ekki strik á móti öflugu Víkingsliði. Kenan Turudija kom Víkingi í 1-0 strax á 13. mínútu eftir laglegan undirbúning William Dominguez da Silva og þannig var staðan þar til á 56. mínútu þegar varmaðurinn Kristófer Eggertsson lagði upp mark fyrir umræddan William Dominguez da Silva. Þetta var fyrsti útisigur Víkingsliðsins síðan 13. júní og aðeins annar sigur liðsins í sex útileikjum í 1. deildinni í sumar. Viktor Unnar Illugason skoraði eina mark leiksins á 72. mínútu þegar HK vann 1-0 sigur á Gróttu í Kórnum. Markið skoraði Viktor með laglegu skoti fyrir utan teig. Upplýsingar um markaskora eru frá vefsíðunni fótbolti.net.Víkingurinn Brynjar Kristmundsson í leiknum á Ásvöllum í kvöld.Vísir/Valli
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti John Cena hættur að glíma Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira