Wolff: Ekki hægt að slaka á með Ferrari svona nálægt

Ástæðan er sú að sögn Toto Wolff, keppnisstjóra liðsins að keppnir eins og ungverska keppnin sýna að það er enginn titill öruggur.
Mercedes ökumennirnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg hófu keppni í fyrsta og öðru sæti en enduðu í sjötta og áttunda. Sebastian Vettel á Ferrari vann og er nú 42 stigum á eftir Hamilton sem leiðir keppni ökumanna.
Wolff varar við því að Ferrari sé ekki hætt að ógna og því ekki hægt að slaka á.
„Hver sem gerir jafn mörg mistök og við gerðum í Búdapest á ekki skilið að vera á verðlaunapalli,“ sagði Wolff í samtali við dagblaðið Stuttgarter Nachrichten.
„Við þurfum ekki að stinga hausnum í sandinn. Ökumennirnir okkar eru enn í fyrstu tveimur sætunum og við erum með gott forskot í keppni bílasmiða,“ bætti Wolff við.
Wolff gekk til varnar Hamilton og þeim mistökum sem hann gerði. Wolff sagði að heimsmeistarinn hefði átt vondan dag en hafði sýnt magnaðan akstur í tímatökunni.
Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Urmull mistaka í Ungverjalandi
Ungverski kappaksturinn bauð upp á urmul mistaka. Hver gerði þau stærstu, hvaða mistök skiptu engu?

Sebastian Vettel vann í Ungverjalandi
Eftir dramatíska keppni kom Sebastian Vettel fyrstur í mark á Ferrari bílnum. Daniil Kvyat á Red Bull varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji einnig á Red Bull.

Hamilton fljótastur og Perez valt
Lewis Hamilton var fljótastur á báðum æfingum dagsins í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar á fyrri æfingunni en Daniil Kvyat á Red Bull varð annar á seinni æfingunni.

Lewis Hamilton á ráspól í Ungverjalandi
Lewis Hamilton á Mercedes tryggði sér ráspól í Ungverjalandi. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Lauda: Svona á lífið í kappakstrinum að vera
Keppnin var einkar viðburðarík. Sebastian Vettel kom Ferrari bílnum í forystu strax í ræsingu og hélt sig þar til loka. Aftar var mikið um sviftingar. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Hamilton: Lítil skref eru lykillinn
Lewis Hamilton tryggði Mercedes sæti á fremstu rásröð 21. kappaksturinn í röð. Hver sagði hvað eftir tímatöku dagsins.